SNJALL jólaratleikur

Jólaskemmtun í snjallsímanum fyrir íbúa og gesti með appinu LoQuiz

Leikurinn hefst við inngangshlið Skrúðgarðsins við bílastæði Ráðhússins eða við Hafnarberg. Þar má finna upplýsingar og QR kóða um leikinn.

Í símanum birtist kort með 13 Þollósveinum sem vísar á spurningakóða sem tengjast jólum og ævintýrum.

MUNIÐ að þysja inn/út kortið til að finna spurningarnar. Leikurinn er opinn frá 1. - 31. desember.

Það er tilvalið að fara af stað í myrkri og nota vasaljós til að skapa meiri stemningu.

Sá hópur sem er fljótastur og með flest rétt svör sigrar.

Sigurvegarar verða kynntir á heimasíðu Ölfuss www.olfus.is þann 12.janúar 2024. Verðlaun í boði!

 

Höfundur: Jóhanna M Hjartardóttir
Snjalltæknimaður: Arna Björg Auðunsdóttir

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?