Syndum - landsátak í sundi, hefst 1. nóvember

Um Syndum
Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja
almenningtil þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Á síðasta ári syntu þátttakendur samtals 31.271km, eða um 24 hringi í kringum landið. Það væri gaman að sjá sem flestar sundlaugar taka þátt.
Í fyrra voru skólar og sundfélög einnig sérstaklega hvött til þátttöku og svo verður einnig í ár.

Við í Ölfusi viljum leggja okkar af mörkum og sjá sem flesta taka þátt!
Skráningablað mun liggja frammi í íþróttamiðstöðinni/sundlauginni í Þorlákshöfn. 


Syndum - Landsátak í sundi, er framhald af Íþróttaviku Evrópu, sem varð 10 ára í ár, og er verkefni styrkt af European Commission. Markmið
Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings.

Það er margt sem við getum gert til að bæta og viðhalda líkama og sál og allt telur. Íslendingar hafa verið duglegir að stunda sund enda búum við vel að góðum sundlaugum um allt land. Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi og er tilvalin þjálfunaraðferð sem styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans en er einnig frábær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman.

Syndum saman í kringum Ísland. Allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á forsíðu
www.syndum.is

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á
www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá synta metra. Þeir sem eiga notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn.

Syndum saman – fyrir betri heilsu og meiri gleði!

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?