Uppbyggingasjóður Suðurlands - vinnustofa á Selfossi

Ertu með hugmynd sem gæti átt erindi í Uppbyggingasjóð Suðurlands 2026?

Komdu á vinnustofu þar sem þú færð innblástur, hagnýta fræðslu og aðstoð við að móta hugmyndina þína og kanna hvernig hún fellur að áherslum sjóðsins.

Byggðaþróunarfulltrúar Uppsveita Árnessýslu, neðri hluta Árnessýslu og Rangárþings verða á staðnum og aðstoða þátttakendur við að rýna verkefnin sín og undirbúa sterkari umsókn.

📍 Bankinn, Austurvegi 20, Selfossi – 3. hæð

Komdu með hugmyndina – hvort sem hún er fullmótuð eða rétt að byrja að taka á sig mynd – og nýttu tækifærið til að fá ráðgjöf áður en þú sendir inn umsókn.
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?