| |
| 1. 2602419 - Breytingar á gjaldskrá leikskóla | |
Elliði Vignisson og Berglind Friðriksdóttir tóku til máls.
Berglind Friðriksdóttir bæjarfulltrúi H-lista lagði fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúi H-lista fagnar jákvæðri útkomuspá fyrir árið 2025 og þeirri stefnu að styðja við barnafjölskyldur í sveitarfélaginu með gjaldfrjálsu leikskólaplássi að 36 stundum á viku. Markmiðið er gott og mikilvægt er að styðja við barnafjölskyldur. Undirrituð gerir þó athugasemdir við málsmeðferðina. Afgreiðsla þess í bæjarráði 19. febrúar sl. fór fram án þess að fyrir lægi fagleg og efnisleg umfjöllun í fræðslunefnd eða formlegt samráð við stjórnendur og starfsfólk leikskóla, né umræða meðal kjörinna fulltrúa. Um er að ræða veigamikla stefnumarkandi ákvörðun og verulega ráðstöfun opinberra fjármuna sveitarfélagsins. Eðlilegt og í anda vandaðrar stjórnsýslu hefði verið að slík ákvörðun færi í opið og skipulagt samráð, þar sem fagleg sjónarmið, rekstrarleg áhrif og forgangsröðun fjármuna til mikilvægra verkefna væru tekin til heildstæðrar skoðunar. Fulltrúi H-lista leggur áherslu á að traust og fagleg stjórnsýsla byggist á gagnsæi, samráði og vandaðri málsmeðferð. Slíkt verklag er forsenda breiðrar sáttar og farsællar innleiðingar mikilvægra ákvarðana.
Erla Sif Markúsdóttir bæjarfulltrúi D-lista tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd bæjarfulltrúa D-lista:
Það vekur furðu að gagnrýni sé sett fram á þeim forsendum að hér hafi verið um óeðlilega málsmeðferð að ræða. Umrædd ákvörðun snýr að breytingu á gjaldskrá leikskóla, sem samkvæmt lögum og verkaskiptingu sveitarfélagsins er skýrt og ótvírætt á forræði bæjarráðs. Það er því ekki rétt að halda því fram að málið hafi átt heima hjá öðrum ráðum eða nefndum, enda fellur gjaldskrárákvörðun undir stjórnsýslulegt hlutverk bæjarráðs. Þá er jafnframt mikilvægt að halda því til haga að í aðdraganda ákvörðunarinnar höfðu farið fram umræður milli allra fulltrúa í bæjarráði um tilgreinda tillögu um gjaldfrjálsan leikskóla. Málið kom því ekki „fyrirvaralaust“ upp, heldur var það rætt og vegið í sameiginlegu samtali kjörinna fulltrúa áður en til formlegrar afgreiðslu kom. Meirihluti D lista vill í þessu máli leggja mesta áherslu á hið jákvæða inntak ákvörðunarinnar. Með afnámi leikskólagjalda að 36 stundum er stigið stórt og mikilvægt skref til stuðnings fjölskyldum í sveitarfélaginu. Aðgerðin léttir verulega fjárhagsbyrði af foreldrum ungra barna, eykur jöfnuð og stuðlar að bættri stöðu barna óháð efnahag heimila. Fyrir margar fjölskyldur getur þessi breyting skipt sköpum í daglegum rekstri og aukið svigrúm til atvinnuþátttöku og fjölskyldulífs. Fyrir liggur að sparnaðurinn fyrir foreldra sem nýta 36 til 40 tíma á viku er 30.870. Foreldrar sem nýta sér 40 tíma greiða þá 4.400 á mánuði í stað 35.200 kr fyrir gjaldskrábreytingu og spara þar með 338.800 á ári. Foreldrar sem eru með tvö börn á leikskóla í fullri vistun spara þar með 575.960 krónur á ári, þegar tekið er tillit til þess að seinna barnið fær 30% afslátt. Það er því mikilvægt að umræðan taki mið af staðreyndum um málsmeðferð og hlutverk bæjarráðs, en ekki síður að horft sé til þess ávinnings sem ákvörðunin hefur í för með sér fyrir foreldra og börn í sveitarfélaginu.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að breyttri gjaldskrá og þar með gjaldfrjálsan leikskóla í allt að 36 tíma á mánuði án aukakostnaðar umfram það sem verið hefur vegna tíma sem eru umfram það.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 2. 2601083 - Fjölgun kjördeilda í Sveitarfélaginu Ölfusi | |
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 3. 1806017 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss 2022-2026 | |
Lagt er til að fresta málinu til næsta fundar.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 4. 2602417 - Samþykkt um hundahald | |
Elliði Vignisson, Hrafnhildur Hlín Hjartardóttir, Erla Sif Markúsdóttir og Grétar Ingi Erlendsson tóku til máls.
Samþykkt samhljóða að vísa samþykkt um hundahald til síðari umræðu.
| | |
|
| 5. 2602418 - Samþykkt um kattahald | |
Samþykkt samhljóða að vísa samþykkt um kattahald til síðari umræðu.
| | |
|
| 6. 2510080 - Hafnarsandur 2 - stækkun tengivirkis - Óv. ASKbr | |
Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
| | |
|
| 7. 2410072 - Árbær 4 Dýraspítali - ASKbr | |
Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
| | |
|
| 8. 2602009 - Árbær 4 - Dýraspítali og verslunarlóðir - DSK | |
Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
| | |
|
| 9. 2510003 - Hrókabólsvegur 1 - aukið nýtingarhlutfall Hjarðarból DSKbr | |
Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
| | |
|
| 10. 2602411 - Námur í Lambafelli E2 og E3 - DSK | |
Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
| | |
|
| 11. 2602035 - Mýrarsel 9 - DSK | |
Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
| | |
|
| 12. 2602405 - Framkvæmdaleyfi - Breikkanir vegamóta vegna vindmylluflutninga | |
Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
| | |
|
| 13. 2602002 - Iðnaðarsvæði sunnan bolaöldu DSK | |
Berglind Friðriksdóttir og Elliði Vignisson tóku til máls.
Niðurstaða nefndarinnar staðfest. | | |
|
| 14. 2602399 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Lághitaborhola í landi bakka | |
Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
| | |
|
| |
| 15. 2601003F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 51 | |
1. 2601024 - Yfirlit barna- og unglingastarfs 2025. Til kynningar. 2. 2601025 - Æskulýðsskýrsla Háfeta 2025. Til kynningar. 3. 2601031 - Fræðsluferð íþrótta-, æskulýðs og tómstundafulltrúa til Berlínar. Til kynningar. 4. 2601023 - Reglugerð fyrir afreks- og styrktarsjóð Sveitarfélagsins Ölfuss. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 5. 2601021 - Tilnefningar til Íþróttamanns Sveitarfélagsins Ölfuss árið 2025. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest. | | |
|
| 16. 2601007F - Bæjarráð Ölfuss - 459 | |
1. 2602007 - Þjónusta sveitarfélaga - þjónustukönnun Gallup 2025. Til kynningar. 2. 2601078 - Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2025-2026. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 3. 2602005 - Leikskólakennaranám - launað námsleyfi. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 4. 2602006 - Umsögn Sv.fél.Ölfuss og Hydros ehf. um drög að frumvarpi til laga um lagareldi. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 5. 1704002 - Lagafrumvörp Beiðni Alþingis um umsögn. Til kynningar.
Fundargerðin lögð fram í heild sinni og hún staðfest.
| | |
|
| 17. 2602005F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 107 | |
1. 2510080 - Hafnarsandur 2 - stækkun tengivirkis - Óv. ASKbr. Tekið fyrir sérstaklega. 2. 2410072 - Árbær 4 Dýraspítali - ASKbr. Tekið fyrir sérstaklega. 3. 2104041 - Aðalból stofnun lóða. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 4. 2602009 - Árbær 4 - Dýraspítali og verslunarlóðir - DSK. Tekið fyrir sérstaklega. 5. 2510003 - Hrókabólsvegur 1 - aukið nýtingarhlutfall Hjarðarból DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega. 6. 2602018 - Mói - stækkun lóðar v. bílastæða - óveruleg DSKbr. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 7. 2601081 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Rauðilækur 3. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 8. 2602008 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Kröggólfsstaðir Réttarhola. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
| | |
|
| 18. 2602004F - Stjórn vatnsveitu - 26 | |
1. 2602016 - Breytingar á stofnlögn vatnsveitu við Velli. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 2. 2506028 - Vatnsveita Árbæ. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
| | |
|
| 19. 2602002F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 81 | |
1. 2601064 - Umsókn um lóð - Hafnarvegur 3. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 2. 2601068 - Umsókn um lóð - Hafnarvegur 3. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 3. 2602011 - Umsókn um lóð - Hafnarvegur 3. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 4. 2602033 - Umsókn um lóð - Hafnarvegur 3. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 5. 2602397 - Umsókn um lóð - Hafnarvegur 3. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 6. 2602003 - Tenging Suðurvarar við Nesbraut. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 7. 2601047 - Stækkun grunnskóla - útboðsgögn. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 8. 2602386 - Verklegar framkvæmdir - útrás fyrir fráveitu. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 9. 2602385 - Verklegar framkvæmdir - dælustöð fyrir fráveitu. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 10. 2601048 - Framkvæmdaráætlun 2025-26. Til kynningar. 11. 2402060 - DSK- reit H3 á hafnarsvæði. Til kynningar.
Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
| | |
|
| 20. 2602006F - Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 39 | |
1. 2311017 - Skýrsla skólastjóra. Til kynningar. 2. 2403046 - Grunnskólinn í Þorlákshöfn -skóladagatal. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 3. 2311012 - Skýrsla leikskólastjóra Bergheima. Til kynningar. 4. 2508002 - Skýrsla leikskólastjóra Hraunheima. Til kynningar. 5. 2602023 - Málefni fatlaðra - sumarfrístund fyrir börn. Til kynningar. 6. 2602031 - Barnaþing í Ölfusi 2026. Til kynningar. 7. 2602024 - Málefni aldraðra - upplýsingabæklingur um þjónustu. Til kynningar. 8. 2602027 - Búsetuúrræði fatlaðra - Niðurstöður frumkvæðsiathugunar GEV. Til kynningar. 9. 2602401 - Félagsþjónusta - fyrirkomulag eftirlits með fósturheimilum. Til kynningar. 10. 2602388 - Trúnaðarmál - áfrýjun á synjun teymisfundar velferðarþjónustu.
Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
| | |
|
| 21. 2602007F - Bæjarráð Ölfuss - 460 | |
1. 2602391 - Útkomuspá 2025. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 2. 2602015 - Beiðni um viðauka - Egilsbraut 9 íbúð nr.7. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 3. 2602036 - Beiðni um viðauka - Selvogsbraut 1. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 4. 2602387 - Fræðslumál - beiðni um viðauka. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 5. 2602389 - Styrktarsjóður EBÍ 2026. Til kynningar.
Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
| | |
|
| 22. 2602009F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 108 | |
1. 2602406 - Kynning á fundi - Terraforming Life - Áburðarverksmiðja á Laxabrautc. Til kynningar. 2. 2602384 - Umsagnarbeiðni um aðalskipulag Hveragerðisbæjar. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 3. 2602404 - Merkjalýsing - Uppskipting lóðar - Akurbraut vegsvæði. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 4. 2602402 - Merkjalýsing - Uppskipting lóðar - Árvegur vegsvæði. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 5. 2601003 - Merkjalýsing - Uppskipting lóðar - Akurbraut 1-2-3-4-6. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 6. 2601004 - Merkjalýsing - Uppskipting lóðar - Árvegur 1-3-5-7-9-11. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 7. 2602041 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Egilsbraut 7. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 8. 2602039 - Merkjalýsing - Uppskipting landeigna - Svartaskersbryggja 1 og Suðurvararbryggja 1. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 9. 2601005 - Merkjalýsing - Uppskipting lóðar - Árbraut 1-3-5. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 10. 2602030 - Merkjalýsing - Uppskipting landeigna - Rásamói 1,3,5 og 1-5 bílastæðalóð, Hnjúkamói 1,3 og 1-3 bílastæðalóð, Hnjúkamói 5, Hnjúkamói 7,9,11 og 7-11 bílastæðalóð. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 11. 2601006 - Merkjalýsing - Uppskipting lóðar - Akuflöt 1-3A-3B-3C-3D. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 12. 2602002 - Iðnaðarsvæði sunnan bolaöldu DSK. Tekið fyrir sérstaklega. 13. 2602034 - Færsla á göngustíg - Setberg 20/Lyngberg 2. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 14. 2602035 - Mýrarsel 9 - DSK. Tekið fyrir sérstaklega. 15. 2602399 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Lághitaborhola í landi Bakka. Tekið fyrir sérstaklega. 16. 2602405 - Framkvæmdaleyfi - Breikkanir vegamóta vegna vindmylluflutninga. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 17. 2510071 - Vegaúrbætur vegna vindmylluflutninga. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 18. 2602410 - Beiðni um heimild til að vinna ASKbr - Rannsóknir og möguleg orkunýting í Meitlum. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 19. 2602411 - Námur í Lambafelli E2 og E3 - DSK. Tekið fyrir sérstaklega. 20. 2602413 - Ósk um samþykki fyrir lagningu reiðvegar út að Hafnarskógi. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 21. 2602400 - Gatnagerð í Akurholti - erindi varðandi efnisnotkun. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 22. 2602017 - Lindarbær- verslunar og þjónustusv. - óv. ASKbr. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 23. 2602414 - Hrafnavík 9-13 beiðni um vik frá DSK skimálum varðandi stöllun plötu. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
| | |
|
| 23. 2602001F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 86 | |
Lagt fram til kynningar.
| | |
|
| 24. 2602003F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 87 | |
Lagt fram til kynningar.
| | |
|
| |
| 25. 1703033 - Menningarmál Fundargerðir stjórnar Listasafns Árnesinga | |
| Lagt fram. | | |
|
| 26. 1805041 - Menningarmál Fundargerðir stjórnar Byggðasafns Árnesinga | |
| Lagt fram. | | |
|
| 27. 2009052 - Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Suðurlands | |
| Lagt fram. | | |
|
| 28. 1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga | |
| Lagt fram. | | |
|
| 29. 2009027 - Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga. | |
| Lagt fram. | | |
|
| 30. 1602012 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar SASS. | |
| Lagt fram. | | |
|
| 31. 2302026 - Arnardrangur hses.fundargerðir stjórnar | |
Lagt fram.
| | |
|
| 32. 1603010 - Málefni fatlaðs fólks Fundargerðir stjórnar Bergrisans. | |
Lagt fram.
| | |
|
| 33. 1701032 - Fræðslumál Fundagerðir stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga. | |
Lagt fram.
| | |
|