| |
| 1. 2212003 - DSK Klettagljúfur deiliskipulag | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að upplýsa íbúa hverfisins sérstaklega þegar skipulagið er auglýst. | | |
|
| 2. 2610159 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Oddabraut 13 - Flokkur 1 | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan verði grenndarkynnt með bréfi til lóðarrétthafa eftirtalinna lóða: Oddabraut 15, Oddabraut 11, Oddabraut 14, Egilsbraut 16, Egilsbraut 14 | | |
|
| 3. 2606038 - Litla kaffistofan - Ferðaþjónusta - Nýtt deiliskipulag | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 4. 2611009 - Gljúfurárholt land 5 og 6 VÞ21 - Fyrirspurn um breytingu á aðalskipulagi | |
| Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Frestað | | |
|
| 5. 2609020 - Umferðaröryggi í búðahverfi - Beiðni um lokun tengingar úr biskupabúðum í Faxabraut | |
| Afgreiðsla Skipulags og umhverfisnefndar: Nefndin tekur undir sjónarmið hestamannafélagsins Háfeta og leggur tillögu félagsins til grundvallar. Lagt er til að tengingu milli hesthúsahverfisins og Laxabrautar verði lokað en tengingin úr Biskupabúðum í Faxabraut verði áfram opin. Til að byrja með verði sett upp tímabundin lokun sem miðast við framkvæmdir á grunnskóla og metið hvernig hún reynist. Verði lokunin ekki virt getur reynst nauðsynlegt að rjúfa veg sem tengir Laxabraut við hesthúsahverfi. | | |
|
| 6. 2611011 - Beiðni um heimild til að reisa garðskála | |
| Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar:Nefndin bendir á að fyrirhugaður skáli er utan byggingarreits. Gera þarf óverulega breytingu á deiliskipulagi, þar sem byggingarreitur er stækkaður, áður en heimilt yrði að reisa slíkan skála. Áður en lóðarhafi lætur vinna slíka breytingu telur nefndin rétt að áformin verði grenndarkynnt fyrir eigendum Klængsbúðar 17 og 21. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna beiðnina. | | |
|
| 7. 2512049 - Kirkjuferja - Fjórar íbúarlóðir - Nýtt deiliskipulag | |
| Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin telur að í þessu tilviki sé forsvaranlegt að víkja frá ákvæði gr. 5.3.2.5 í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 um 50 m fjarlægð íbúðarhúsa frá héraðsvegi. Kirkjuferjuvegur (3915) endar við Kirkjuferju 2 og þjónar fyrst og fremst þeim fáu eignum sem við hann standa. Umferð um veginn er því lítil og ekki líklegt að hún aukist verulega á komandi árum. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að óskað verði eftir undanþágu ráðherra frá ákvæðinu vegna byggingarreits íbúðarhúss á lóð 4. | | |
|
| 8. 2602411 - Námur í Lambafelli E2 og E3 - DSK | |
| Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 9. 2605011 - Tangagljúfur og Háagljúfur - AT6, ÍB36 og VÞ20 óv. ASKbr | |
| Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin samþykkir óverulega breytingu á aðalskipulagi og beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að senda hana Skipulagsstofnun í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir nefndin að deiliskipulagstillagan verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|