| |
| 1. 2311017 - Skýrsla skólastjóra | |
Nefndin lýsir ánægju með fjölbreytt og öflugt skólastarf en telur jafnframt mikilvægt að bregðast markvisst við þeim áskorunum sem fram koma í niðurstöðum Skólapúlsins, sérstaklega hvað varðar vellíðan nemenda og notkun samfélagsmiðla.
Nefndin óskar eftir að fylgst verði áfram með þróun mála og að upplýsingar um framvindu aðgerða verði lagðar fyrir nefndina síðar á skólaárinu. | | |
|
| 2. 2311012 - Skýrsla leikskólastjóra Bergheima | |
| Nefndin þakkar leikskólastýru Bergheima, fyrir framlagða skýrslu og greinargóða kynningu á starfsemi leikskólans. Nefndin tekur jákvætt í þær áherslur sem þar koma fram, meðal annars á sviði málörvunar barna, starfsþróunar og gæðastarfs. | | |
|
| 3. 2510039 - Bergheimar - Starfsáætlun | |
Nefndin hefur farið yfir starfsáætlun Bergheima og telur hana endurspegla skýrar faglegar áherslur og markmið leikskólans.
Nefndin staðfestir starfsáætlunina og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar. | | |
|
| 4. 2508002 - Skýrsla leikskólastjóra Hraunheima | |
| Nefndin þakkar fyrir framlagða skýrslu og greinargóða kynningu á starfsemi Hraunheima. Nefndin tekur jákvætt í þær áherslur sem þar koma fram, meðal annars varðandi aukið aðgengi barna, þróun samskiptastuðnings og öflugt samstarf milli skólastiga. | | |
|
| 5. 2611014 - Frístundamiðstöð - greinargerð um stofnun | |
| Fjölskyldu- og fræðslunefnd fagnar framlagðri greinargerð og þeim áherslum sem þar koma fram um eflingu og samræmingu frístunda- og æskulýðsstarfs í sveitarfélaginu. Nefndin telur að stofnun frístundamiðstöðvar geti skapað sterkari faglegan grundvöll fyrir þjónustu við börn og ungmenni og stuðlað að auknu samstarfi milli þeirra aðila sem koma að málaflokknum. | | |
|
| |
| 6. 2611032 - Bókun skólanefndar Hveragerðisbæjar | |
Nefndin þakkar kynninguna.
Nefndin leggur áherslu á mikilvægi góðs samstarfs og upplýsingaflæðis á milli sveitarfélaganna, Hveragerðis og Ölfuss sem standa að rekstri skólanna í Hveragerði. | | |
|