Fundargerðir

Til bakaPrenta
Ungmennaráð - 9

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
16.11.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Eva Rán Ottósdóttir aðalmaður,
Gunnar Ægir Þorsteinsson aðalmaður,
Freyja Ósk Ásgeirsdóttir aðalmaður,
Hreiðar Leó Vilhjálmsson aðalmaður,
Védís Kolka Jónsdóttir aðalmaður,
Ragnar M. Sigurðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi,
Fundargerð ritaði: Ragnar M Sigurðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2611056 - Tillögukassi
Tillögukassinn
Formaður ungmennaráðs heimsótti grunnskólann og kynnti starfsemi Ungmennaráðs Sveitarfélagsins Ölfuss fyrir nemendum í 8. 9. og 10. bekk. Í framhaldi af heimsókninni var settur upp tillögukassi þar sem nemendur gátu komið á framfæri hugmyndum og tillögum að því hvernig bæta mætti samfélagið og umhverfi ungs fólks í sveitarfélaginu.
Farið var yfir þær tillögur sem bárust í tillögukassann og nokkur helstu málefni tekin til umræðu:
Samgöngur: Fram komu óskir um bættar samgöngur til Reykjavíkur um helgar, beinar ferðir til Reykjavíkur og beina strætóleið í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Ráðið telur mikilvægt að skoða hvernig bæta megi samgöngur ungs fólks og auka þannig möguleika þess til þátttöku í námi, félagsstarfi og tómstundum. Einnig komu fram ábendingar um að það þurfi að bæta aðgengi fyrir gangandi og hjólandi að golfvellinum. Töluverður fjöldi barna og unglinga eru farin að stunda golf og til að fara gangandi eða hjólandi út á golfvöll þá er eingöngu hægt að fara eftir veginum frá gatnamótunum Ósetrarbrautar og Hafnarvegs
Líkamsrækt og sund: Rætt var um þörf fyrir betri líkamsræktaraðstöðu, fjölbreyttari líkamsræktartæki og lengri opnunartíma líkamsræktar og sundlaugar um helgar. Ungmennaráð telur að góð og aðgengileg íþrótta- og heilsuaðstaða sé mikilvæg fyrir heilsu, vellíðan og virkni ungs fólks.
Þátttaka stúlkna í íþróttum: Ábending kom fram um litla þátttöku stúlkna í íþróttum og rætt var um möguleika á að fá íþróttakonu til að halda fræðslu eða kynningu. Markmiðið væri að hvetja stúlkur til þátttöku í íþróttum, efla sjálfstraust þeirra og vekja áhuga á fjölbreyttum íþróttagreinum.
Lýðheilsa: Ungmennaráð ræddi áhuga á fræðslu um lýðheilsu og mikilvægi þess að ungt fólk fái upplýsingar um heilsu, líðan og heilbrigðan lífsstíl. Skoða mætti möguleika á að halda fræðslu eða viðburði sem höfða til ungmenna.
Kynfræðsla: Fram kom ósk um að bæta kynfræðsluvikuna, meðal annars með því að draga úr endurtekningu á efni sem nemendur hafa þegar fengið fræðslu um. Rætt var um að fá Siggu Dögg sem mögulegan fyrirlesara og leggja áherslu á fjölbreytta, fræðandi og áhugaverða kynfræðslu sem tekur mið af þörfum og aldri ungmenna.
Verslanir og veitingastaðir: Rætt var um óskir ungmenna um fjölbreyttara úrval verslana og veitingastaða í sveitarfélaginu. Þótt slíkt sé ekki að öllu leyti á valdsviði sveitarfélagsins er mikilvægt að taka mið af sjónarmiðum ungmenna varðandi þjónustu og afþreyingu í nærumhverfi þeirra.
Atvinnumál: Fram kom ósk um fleiri atvinnutækifæri fyrir unglinga í sveitarfélaginu. Rætt var um mikilvægi þess að skapa ungmennum fleiri möguleika til sumarstarfa og annarra starfa samhliða námi, þannig að þau geti öðlast reynslu og aukið tengsl sín við atvinnulífið.
Fundur með bæjarstjóra.
Ungmennaráð mun eiga fund með bæjarstjóra miðvikudaginn 18. nóvember kl. 16:30.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?