| |
| 1. 2603035 - Kríuvík 10 - fyrirspurn um túlkun skipulags - heimild til að gera kjallara | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samkvæmt meðfylgjandi teikningu er um hús að ræða með inndreginni efri hæð. Ekki verður séð að hönnun hússins verði til truflunar fyrir nágranna s.s. vegna skuggavarps og er hönnunin því samþykkt. | | |
|
| 2. 2603036 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna rannsóknarborholu | |
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt.
Fært til bókar á fundi - Guðmundur Oddgeirsson: Enn og aftur heldur OR áfram með bútasauminn, einn skiki á eftir öðrum er tekinn af ósnortu landi. Núna óskar OR eftir leyfi til að fara inn í Lakadal með tilheyrandi vegslóða og borplani. Engin heildarsýn liggur fyrir á Hellisheiðarsvæðinu í því hversu langt á að ganga í að vaða yfir náttúru svæðisins. Er kominn tími á málstofu um hverju eigi að fórna, hvort eigi að skilgreina Hellisheiðarsvæðið í heild sinni sem orkuvinnslusvæði, frá Bláfjöllum í vestri, Skálafell með Norður- og Suðurhálsum, Stóra- og Litla Meitili og Henglinum, eða ekki? Ég velti fyrir mér hvort að baráttan fyrir náttúrunni á þessu svæði sé töpuð. Guðmundur Oddgeirsson, áheyrnarfulltrúi Íbúalistans.
| | |
|
| 3. 2603041 - Umsókn um lóð - Litla Kaffistofan | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt. | | |
|
| 4. 2603056 - Klettar-Þóroddstaðir 2 - Fyrirspurn um heimild til að breyta landnotkun | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin tekur jákvætt í fyrirspurn landeiganda um framlagðar hugmyndir. Nefndin bendir á að fyrirhuguð breyting á landnotkun úr landbúnaðarsvæði í verslun og þjónustu, sem og aukið byggingarmagn, kalli á breytingu á aðalskipulagi. Jafnframt sé ljóst að vinna þurfi deiliskipulag fyrir svæðið. Þá er bent á að tryggja þarf aðgengi að neysluvatni fyrir lóðirnar áður en skipulag fær lokaafgreiðslu. | | |
|
| 5. 2603057 - Tengivirki á Völlum - DSK | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|