Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarráð Ölfuss - 475

Haldinn í fjarfundi,
05.11.2026 og hófst hann kl. 12:15
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir aðalmaður,
Gunnsteinn R. Ómarsson aðalmaður,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2511079 - Lista og menningarsjóður Ölfuss - umsóknir
Sveitarfélagið Ölfus auglýsti eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði Ölfuss. Til úthlutunar í ár eru kr. 1.440.000.

Markmið sjóðsins er að efla hvers konar menningarstarfsemi og list í sveitarfélaginu og veita styrki til sérstakra verkefna á sviði lista- og menningarmála sem tengjast sveitarfélaginu á einn eða annan hátt.

Bæjarráð lýsir yfir ánægju með fjölbreytileika og gæði þeirra umsókna sem bárust. Eftir að hafa yfirfarið umsóknir er niðurstaða ráðsins að styrkúthlutun verði sem hér segir:

Lúðrasveit Þorlákshafnar, vortónleikar: 505.000 kr.
Tónlistaskóli Árnesinga, brú milli tóna: 250.000 kr.
ARGH verjar: Listasýning, Hamingjuopnun: 200.000 kr.
Hamingjuhöfn, miðlun frétta úr heimabyggð: 200.000 kr.
Alþjóðleg tónlistahátið, WindWorks: 100.000 kr.
Kirkjukór Kotstrandarsóknar og Hveragerðis, Afmælistónleikar: 100.000 kr.
Ármann Elías, Lifandi popptónlist: 85.000 kr.

Samþykkt samhljóða.


2. 2611007 - Beiðni um rekstrarstyrk
Lagt fram erindi frá stjórn Reiðhallar Guðmundar þar sem óskað er eftir 2.000.000 kr. rekstrarstyrk sem eingreiðslu til að mæta kostnaði vegna hitaveitu, rafmagns og viðhalds reiðhallargólfs. Í erindinu er gerð grein fyrir breyttum rekstrarforsendum hallarinnar og aðgerðum til að styrkja tekjugrunn hennar.

Reiðhöllin gegnir mikilvægu hlutverki í hestaíþróttum og barna- og æskulýðsstarfi í sveitarfélaginu. Samkvæmt erindinu sækja um 100 börn úr Ölfusi reiðnámskeið í höllinni árlega og hafa afnot barna og ungmenna af aðstöðunni verið gjaldfrjáls frá upphafi.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og tekur undir mikilvægi Reiðhallar Guðmundar fyrir íþrótta- og æskulýðsstarf í sveitarfélaginu. Sú aðstaða sem þar hefur verið byggð upp gerir börnum og ungmennum kleift að stunda hestamennsku við góðar og öruggar aðstæður allt árið.

Bæjarráð færir Einari Sigurðssyni sérstakar þakkir fyrir ómetanlegt framlag hans til uppbyggingar og viðhalds reiðhallarinnar. Jafnframt fagnar bæjarráð þeirri vinnu stjórnar hallarinnar að styrkja tekjugrunn hennar og skapa rekstrinum traustari grundvöll til framtíðar.

Bæjarráð vísar beiðninni um 2.000.000 kr. rekstrarstyrk til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027, með það að markmiði að styðja við áframhaldandi starfsemi hallarinnar og gjaldfrjáls afnot barna og ungmenna af aðstöðunni.

Samþykkt samhljóða.
3. 2607032 - Viljayfirlýsing vegna mögulegrar uppbyggingar gagnavers
Lagt fram samkomulag milli Sveitarfélagsins Ölfuss og Glacier Grid ehf. um skilyrt og tímabundið lóðarvilyrði vegna áforma félagsins um uppbyggingu gagnavers á iðnaðarsvæði I4, Sandi I norðan Suðurstrandarvegar.

Uppbyggingin er fyrirhuguð í þremur áföngum. Til viðmiðunar er gert ráð fyrir að fyrsti áfangi kalli á um 30 MW orku með lóðarþörf um sex hektara og að heildarlóðarþörf núverandi áforma verði um 16 hektarar. Samkvæmt áætlunum félagsins gætu skapast 30-50 varanleg bein störf við rekstur fyrsta áfanga og árlegar tekjur sveitarfélagsins af fasteignagjöldum og lóðarleigu hans numið um 50-130 m.kr., háð fasteignamati.

Samkomulagið kveður á um tólf mánaða vilyrði frá undirritun. Nákvæm staðsetning, stærð og mörk lóðarinnar verða ákveðin síðar og leitast skal við að ljúka afmörkun og afstöðu sveitarfélagsins til hennar innan 90 daga frá gildistöku samkomulagsins. Þegar afmörkun hefur verið samþykkt skriflega af sveitarfélaginu verður svæðið frátekið fyrir félagið á gildistíma samkomulagsins.

Glacier Grid ber kostnað af deiliskipulagsvinnu og tilheyrandi undirbúningi samkvæmt samkomulaginu. Endanleg lóðaúthlutun og möguleg stækkun koma til sérstakrar afgreiðslu síðar ef á slíkt reynir.

Bæjarráð fagnar áformum Glacier Grid ehf. um uppbyggingu gagnavers í Ölfusi og þeim tækifærum sem verkefnið getur skapað til fjölgunar starfa, verðmætasköpunar og eflingar tekjugrunns sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samkomulag um skilyrt og tímabundið lóðarvilyrði innan iðnaðarsvæðis I4 og felur bæjarstjóra að ganga frá samkomulaginu og undirrita það fyrir hönd Sveitarfélagsins Ölfuss.

Bæjarstjóra er jafnframt falið að vinna áfram með félaginu og skipulagsfulltrúa að nánari staðsetningu og afmörkun lóðarinnar í samræmi við ákvæði samkomulagsins.

Bæjarráð áréttar að endanleg lóðaúthlutun er háð viðeigandi skipulagsmeðferð, sérstakri samþykkt bæjarráðs og samkomulagi um lóðarleigusamning og tilskilin gjöld. Samkomulagið breytir ekki lögbundnu skipulagsforræði sveitarfélagsins og felur ekki í sér fyrirfram samþykki á deiliskipulagi eða leyfisveitingum.

Samþykkt samhljóða.
4. 2611008 - Viljayfirlýsing um mögulegt hitaveituverkefni
Lögð fram drög að viljayfirlýsingu milli Sveitarfélagsins Ölfuss og Orkufyrirtækisins Reykjavík Geothermal ehf. um samstarf við að kanna forsendur hitaveituverkefnis í sveitarfélaginu. Markmiðið er að leita leiða til að bæta aðgengi fyrirtækja og íbúa að heitu vatni og stuðla að ávinningi nærsamfélagsins af nýtingu jarðhitaauðlinda, í samræmi við orku- og auðlindastefnu Ölfuss.

Til skoðunar er sérstakt hitaveituverkefni nærri Þorlákshöfn, með uppsettu varmaafli undir 50 MWth. Verði sá kostur ekki fyrir valinu er einnig hugsanlegt að tengja hitaveituverkefnið við verkefni Reykjavík Geothermal í Bolaöldu. Aðilar hyggjast kanna framboð og eftirspurn, fjárhagslega hagkvæmni, tæknilegar forsendur og mögulega staðsetningu verkefnisins.

Viljayfirlýsingin gildir í allt að 24 mánuði, nema aðilar semji skriflega um annað, og lýkur fyrr ef frekari samningur verður gerður eða viðræðum lýkur án samkomulags. Hún felur ekki í sér bindandi samning um framkvæmd verkefnisins, en ákvæði hennar um trúnað eru bindandi og taka mið af lögbundinni upplýsingaskyldu sveitarfélagsins. Viljayfirlýsingin sjálf verður opinbert skjal.

Bæjarráð fagnar vilja Reykjavík Geothermal ehf. til samstarfs um að kanna aukið framboð á heitu vatni í Ölfusi. Bæjarráð leggur áherslu á að nýting orkuauðlinda sveitarfélagsins skili ávinningi til íbúa og atvinnulífs og styðji við áframhaldandi uppbyggingu, í samræmi við orku- og auðlindastefnu Ölfuss.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu og felur bæjarstjóra að ganga frá henni og undirrita fyrir hönd Sveitarfélagsins Ölfuss.

Bæjarstjóra er jafnframt falið að leiða áfram viðræður við Reykjavík Geothermal og vinnu við að kanna forsendur, umfang og fyrirkomulag hitaveituverkefnisins. Niðurstöður þeirrar vinnu og tillögur að frekari samningum verði lagðar fyrir bæjarráð til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:30 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?