| |
| 1. 2608035 - Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Ölfuss 2027-2030 | |
Bæjarráð vísar fjárhags- og framkvæmdaáætlun Sveitarfélagsins Ölfuss 2027-2030 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 2. 2611048 - Breytingar á reglum um úthlutun lóða | |
Bæjarráð samþykkir að leggja til breytingar á 4.11. og 8.1. r. reglnanna í samræmi við framlagðar tillögur. Bæjarráð samþykkir jafnframt að heimild til að víkja frá reglunum samkvæmt nýrri 16.2. gr. verði hjá bæjarráði, með svohljóðandi orðalagi: „Heimilt er að víkja frá þessum reglum með ákvörðun bæjarráðs.“
Bæjarráð vísar breytingunum til bæjarstjórnar til endanlegrar samþykktar. Að henni fenginni verði uppfærðar reglur birtar á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 3. 2611047 - Gjaldskrá byggingarleyfis- og þjónustugjalda | |
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti þær breytingar sem lagðar eru til í minnisblaðinu og uppfærða gjaldskrá fyrir byggingarleyfis- og þjónustugjöld.
Bæjarráð vísar gjaldskránni til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 4. 2611025 - Ósk um stuðning við starfsemi Samtaka um karlaathvarf | |
Bæjarráð getur því miður ekki orðið við erindinu.
| | |
|
| 5. 2611026 - Ósk um samstarf | |
Bæjarráð telur ekki að forsendur hafi breyst frá því að síðast var samþykkt að standa utan Markaðsstofu Suðurlands. Í því er fólgin sú afstaða að markaðsmál verði áfram unnin í gegnum Ölfus Cluster. Eftir sem áður er sveitarfélagið, sem og Ölfus Cluster, til í samstarf við Markaðsstofu Suðurlands um sameiginleg hagsmunamál.
Bæjarráð minnir ennfremur á fyrra tilboð sitt um að leggja Markaðsstofunni til gjaldfrjálst húsnæði í Ölfusi undir starfsemi sína. Verði það boð þegið er einsýnt að Sveitarfélagið Ölfus mun enduskoða afstöðu sína um að standa utan Markaðsstofunnar.
Málið tekið til atkvæðagreiðslu, Grétar Ingi Erlendsson D-lista og Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir D-lista greiddu atkvæði með afgreiðslunni. Gunnsteinn Ómarsson S-lista sat hjá.
Gunnsteinn lagði fram eftirfarandi bókun: Sveitarfélagið Ölfus er eina sveitarfélagið á Suðurlandi sem ekki tekur þátt í samstarfinu um Markaðsstofu Suðurlands. Með þátttöku í samstarfinu fengi Sveitarfélagið Ölfus aðgang að sérfræðiþekkingu, þjónustu, tengslaneti og sameiginlegum innviðum Markaðsstofu Suðurlands og tæki þátt í sameiginlegu þróunar- og markaðsstarfi landshlutans. Auk þessa er viðbúið að þátttaka í verkefninu myndi styrkja samstarf sveitarfélaga á Suðurlandi.
| | |
|