| |
| 1. 2603032 - Barna- og unglingaþing Ölfuss 2026 - skýrsla | |
Til máls tóku: Erla Sif Markúsdóttir, Gestur Þór Kristjánsson, Grétar Ingi Erlendsson, Berglind Friðriksdóttir, Hrönn Guðmundsdóttir og Elliði Vignisson.
Berglind Friðriksdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúi H-lista fagnar skýrslu með niðurstöðum barna- og unglingaþings og telur mikilvægt að markvisst sé leitað eftir sjónarmiðum barna og ungmenna við mótun stefnu og ákvarðanatöku í málefnum sveitarfélagsins.
Undirrituð leggur áherslu á að börn og ungmenni séu virkir þátttakendur í sveitarfélaginu og að raddir þeirra fái að heyrast. Með því að hlusta á reynslu, hugmyndir og þarfir þeirra má byggja upp betra samfélag fyrir alla íbúa.
Þessi vinna undirstrika mikilvægi þess að skýr vettvangur sé skapaður þar sem börn og ungmenni geti tjáð skoðanir sínar á öruggan og áhrifaríkan hátt og að mark sé tekið á þeirra sjónarmiðum í áframhaldandi stefnumótun og ákvarðanatöku.
Bæjarstjórn Ölfuss þakkar fyrir framlag barna og ungmenna á Barnaþingi Ölfuss 2026 og fagnar þeim fjölbreyttu og uppbyggilegu sjónarmiðum sem þar komu fram.
Bæjarstjórn leggur áherslu á mikilvægi þess að hlusta á raddir barna og ungmenna og mun nýta niðurstöður þingsins sem leiðarljós við áframhaldandi þróun skóla-, frístunda- og samfélagsmála í sveitarfélaginu.
Sérstök áhersla verður lögð að efla leik- og frístundaaðstöðu, bæta öryggi og nærumhverfi barna, styðja við vellíðan og jákvæð samskipti, og auka þátttöku barna og ungmenna í ákvarðanatöku.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 2. 2603060 - Ársreikningar Sveitarfélagsins Ölfuss 2025 | |
Lagður var fram ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2025 til fyrri umræðu.
Elliði Vignisson bæjarstjóri fór yfir helstu niðurstöður úr ársreikningi sveitarfélagsins.
Rekstrarhagnaður samstæðunnar á árinu nam rúmum 1.397 milljónum kr. á árinu 2025.
Rekstrarhagnaður A hluta var 987,5 milljónir.
Skuldastaða sveitarfélagsins er góð og hækka langtímaskuldir samstæðunnar um 245 milljónir milli ára. Skuldaviðmið samkvæmt reglugerð er 18,88% en var 33,53 % árið áður og skuldahlutfallið er 60,93% en var 77,55 % árið 2024.
Grétar Ingi Erlendsson og Hrönn Guðmundsdóttir tóku til máls.
Samþykkt samhljóða að vísa umræðu um ársreikning 2025 til síðari umræðu í bæjarstjórn.
| | |
|
| 3. 1806017 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss 2022-2026 | |
Lagt er til að yfirkjörstjórn sveitarfélagsins verði skipuð með eftirfarandi hætti:
Aðalmenn Sigurður Ósmann Jónsson Katrín Ósk Hannesdóttir Ásta Margrét Grétars Bjarnadóttir
Varamenn Jón Páll Kristófersson Sigríður Vilhjálmsdóttir Ingibjörg Kjartansdóttir
Lagt er til að undirkjörstjórn sveitarfélagsins verði skipuð með eftirfarandi hætti:
Aðalmenn: Guðmunda Helga Guðmundsdóttir Emma Dröfn Bjarnadóttir Sigurður Steinar Ásgeirsson
Varamenn Halldór Ingólfsson Sigþrúður Harðardóttir Anna Júlíusdóttir
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 4. 1806017 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss 2022-2026 | |
Lagt er til að fulltrúar sveitarfélagsins á aðalfundum ofangreindra stofnana verði:
Aðalmenn Gestur Þór Kristjánsson, Erla Sif Markúsdóttir og Vilhjálmur Baldur Guðmundsson.
Varamenn: Grétar Ingi Erlendsson, Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir og Hrönn Guðmundsdóttir.
Samþykkt samhljóða | | |
|
| 5. 2602418 - Samþykkt um kattahald | |
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 6. 2602417 - Samþykkt um hundahald | |
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 7. 2602018 - Mói - stækkun lóðar v. bílastæða - óveruleg DSKbr | |
| Niðurstaða nefndarinnar staðfest. | | |
|
| 8. 2603057 - Tengivirki á Völlum - DSK | |
| Niðurstaða nefndarinnar staðfest. | | |
|
| 9. 2603036 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna rannsóknarborholu | |
Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
Berglind Friðriksdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúi H-lista vekur athygli á bókun Guðmundar Oddgeirssonar áheyrnarfulltrúa í Skipulags- og umhverfisnefnd og tekur undir mikilvægi þess að heildarsýn liggi fyrir um framtíð Hellisheiðarsvæðisins.
„Enn og aftur heldur OR áfram með bútasauminn, einn skiki á eftir öðrum er tekinn af ósnortnu landi. Núna óskar OR eftir leyfi til að fara inn í Lakadal með tilheyrandi vegslóða og borplani. Engin heildarsýn liggur fyrir á Hellisheiðarsvæðinu í því hversu langt á að ganga í að vaða yfir náttúru svæðisins. Er kominn tími á málstofu um hverju eigi að fórna, hvort eigi að skilgreina Hellisheiðarsvæðið í heild sinni sem orkuvinnslusvæði, frá Bláfjöllum í vestri, Skálafell með Norður- og Suðurhálsum, Stóra- og Litla Meitli og Henglinum, eða ekki? Ég velti fyrir mér hvort að baráttan fyrir náttúrunni á þessu svæði sé töpuð. Guðmundur Oddgeirsson, áheyrnarfulltrúi Íbúalistans.“
| | |
|
| |
| 10. 2602011F - Bæjarráð Ölfuss - 461 | |
1. 2602025 - Beiðni um dýrahald í félagslegri íbúð aldraðra. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 2. 2603002 - Beiðni um viðauka - Grunnskólinn. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 3. 2602421 - Beiðni um viðauka vegna Sambyggðar 8. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 4. 2603004 - Boð um forkaupsrétt á skipinu Vinur ÁR060. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest. | | |
|
| 11. 2603001F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 109 | |
1. 2602420 - Kríuvík 12 - Færsla bílastæða. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 2. 2603001 - Hrafnavík 2, stækkun byggingarreits. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 3. 2603003 - Birkimói 6-8 - Fjögurra íbúða raðhús. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 4. 2603006 - Merkjalýsing - Samsett aðgerð - Birkimói 3, Þorlákshöfn. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 5. 2603007 - Merkjalýsing - Samruni landeigna - Norðurbakki 7-9, Þorlákshöfn. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 6. 2603010 - Merkjalýsing - Samsett aðgerð - Lyngberg 2 og Setberg 20, Þorlákshöfn. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest. | | |
|
| 12. 2603004F - Fjallskilanefnd - 12 | |
1. 2603019 - Uppgjör fjallskila 2025. Til staðfestingar.
Fundargerðin lögð fyrir í heild sinni og hún staðfest.
| | |
|
| 13. 2603003F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 82 | |
1. 2505009 - Samningur um aðstöðu og leigu lóðar - Torcargo. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 2. 2603013 - Tilboð í Flataskersbryggju. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 3. 2602386 - Verklegar framkvæmdir - útrás fyrir fráveitu. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 4. 2601048 - Framkvæmdaráætlun 2025-26. Til kynningar. 5. 2602385 - Verklegar framkvæmdir - dælustöð fyrir fráveitu. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 6. 2601047 - Stækkun grunnskóla - útboðsgögn. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 7. 2603033 - Byggingarstjórn- og eftirlit með viðbyggingu grunnskóla. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 8. 2603039 - Umsókn um lóð - Hafnarvegur. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 9. 2603040 - Umsókn um lóð - Hafnarvegur. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
| | |
|
| 14. 2603005F - Bæjarráð Ölfuss - 462 | |
1. 2603014 - Beiðni um viðauka - Selvogsbraut 1. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 2. 2603015 - Beiðni um viðauka - Grunnskólinn. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 3. 2603029 - Beiðni um viðauka vegna aukaverk í Hraunheimum. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 4. 2603026 - Beiðni um viðauka vegna leikvalla. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 5. 2603027 - Viðauki við samkomulag um fasteignaþróun við Óseyrarbraut. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 6. 2603028 - Verkefnið Hjartans þakkir fyrir bókasafnið. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 7. 2304043 - Fundartími bæjarráðs. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 8. 1704002 - Lagafrumvörp Beiðni Alþingis um umsögn. Til kynningar.
Fundargerðin lögð fram í heild sinni og hún staðfest.
| | |
|
| 15. 2603008F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 110 | |
1. 2603035 - Kríuvík 10 - fyrirspurn um túlkun skipulags - heimild til að gera kjallara. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 2. 2603036 - Umsókn um framkvæmdaleyfi vegna rannsóknarborholu.Tekið fyrir sérstaklega. 3. 2603041 - Umsókn um lóð - Litla Kaffistofan. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 4. 2603056 - Klettar-Þóroddstaðir 2 - Fyrirspurn um heimild til að breyta landnotkun. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 5. 2603057 - Tengivirki á Völlum - DSK.Tekið fyrir sérstaklega.
Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
| | |
|
| |
| 16. 1701032 - Fræðslumál Fundagerðir stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga. | |
Lagt fram.
| | |
|
| 17. 1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga | |
Lagt fram.
| | |
|
| 18. 1703033 - Menningarmál Fundargerðir stjórnar Listasafns Árnesinga | |
Lagt fram.
| | |
|
| 19. 1805041 - Menningarmál Fundargerðir stjórnar Byggðasafns Árnesinga | |
Lagt fram.
| | |
|