Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarstjórn Ölfuss - 361

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
24.09.2026 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Gestur Þór Kristjánsson forseti bæjarstjórnar,
Erla Sif Markúsdóttir bæjarfulltrúi,
Guðlaug Einarsdóttir bæjarfulltrúi,
Geir Höskuldsson 1. varamaður,
Bettý Grímsdóttir 2. varamaður,
Pálmi Þór Ásbergsson 1. varamaður,
Berglind Friðriksdóttir bæjarfulltrúi,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri
Í upphafi fundar leitað forseti eftir athugasemdum við fundarboð en engar bárust.

Einnig var óskað eftir að taka inn með afbrigðum mál nr.2605064 og var það samþykkt samhljóða.

Forseti bauð Pálma Þór Ásbergsson sérstaklega velkominn á sinn fyrsta bæjarstjórnarfund.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2605064 - Fundartími bæjarstjórnar kjörtímabilið 2026-2030
Þar sem næsta reglulega fund bæjarstjórnar ber upp á sama degi og árþing SASS er lagt til að breyta fundartíma októberfundarins.
Lagt er til að næsti reglulegi fundur verði miðvikudaginn 21.október nk.

Samþykkt samhljóða.
2. 2607021 - Eima - Deiliskipulagsbreyting - Landbúnaðarlóðir
Lögð er fram deiliskipulagsbreyting fyrir Eimu í Selvogi. Breytingin felur í sér útvíkkun deiliskipulagsins og að bætt verði við 5 lóðum norðan Suðurstrandarvegar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin vill vekja athygli á að uppbygging á syðra svæðinu er orðin nokkuð þétt og ekki í fullu samræmi við strjálbýlisákvæði. Selvogur er merkilegt minjasvæði sem ber að varðveita og því telur nefndin rétt að deiliskipulagsbreytingin verði grenndarkynnt sérstaklega samhliða auglýsingu.

Málið var tekið til atkvæðagreiðslu: Samþykkt með 4 atkvæðum nefndarmanna D-lista. Berglind Friðriksdóttir S-lista greiddi atkvæði á móti.

Berglind lagði fram eftirfarandi bókun: Selvogur er einstakt menningar- og búsetulandslag þar sem saga byggðar, fornminjar, lágreist byggð, víðsýni og kyrrð mynda eina heild. Sérstaða svæðisins felst því ekki aðeins í einstökum skráðum minjum heldur einnig í samhengi þeirra við landslagið, byggðarmynstrið og þá ásýnd sem einkennir Selvog.
Í Aðalskipulagi Ölfuss 2020-2036 er Selvogur skilgreindur sem hverfisverndarsvæði og þar er sérstaklega vísað til mikilla minja um byggð. Jafnframt kemur þar fram sú stefna sveitarfélagsins að vinna skuli að deiliskipulagi, rammahluta aðalskipulags eða verndarsvæði í byggð sem taki til verndunar umhverfis, byggðar og hugsanlegrar framtíðaruppbyggingar á svæðinu.
Þá hefur sveitarfélagið áður lagt áherslu á að byggðamynstur Selvogs sé strjálbýlt og að ekki séu þar þyrpingar húsa. Við fyrri deiliskipulagsgerð fyrir Eimu var sérstaklega lögð áhersla á að hús yrðu stakstæð og í samræmi við þetta byggðamynstur.
Nú liggur hins vegar fyrir tillaga sem felur í sér umtalsverða aukningu á byggingarheimildum á svæðinu, m.a. með nýjum lóðum og heimildum fyrir íbúðar-/frístundabyggð, gestahúsum og ferðaþjónustu.
Undirrituð telur að við mat á slíkri uppbyggingu verði ekki eingöngu horft til þess hvort hægt sé að halda einstökum fornleifum óskemmdum. Ný uppbygging getur raskað þeirri heild án þess að einni einustu tóft sé raskað með beinum hætti. Meta verður áhrif uppbyggingarinnar á menningarlandslagið sem heild, þar með talið landslag, byggðamynstur, minjar, ásýnd, víðsýni og upplifun svæðisins.
Sérstök ástæða er til að staldra við að nefndin hefur áður bent á að umfjöllun um MV4 í aðalskipulagi skorti þar sem skipulagið liggur yfir það svæði. Nefndin gerði jafnframt athugasemdir við umfang byggingarheimilda, m.a. mænishæð, staðsetningu byggingarreita og fjölda samliggjandi lóða á landbúnaðarsvæði.
Að mati undirritaðrar hefur ekki verið sýnt fram á með nægilega heildstæðum hætti að fyrirhuguð uppbygging samræmist þeirri hverfisvernd og þeim verndarsjónarmiðum sem sveitarfélagið hefur sjálft sett fyrir Selvog. Ekki liggur heldur nægilega skýrt fyrir hvaða áhrif sú uppbygging sem hér um ræðir getur haft á heildarmynd Selvogs og framtíðarþróun svæðisins.

Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal grenndarkynnt fyrir öðrum íbúum á svæðinu.


Niðurstaða nefndarinnar staðfest með 5 atkvæðum bæjarfulltrúa D-lista.

Berglind Friðriksdóttir og Pálmi Þór Ásbergsson bæjarfulltrúar S-lista greiddu atkvæði á móti.
3. 2608039 - Umsókn um deiliskipulag -eða breytingu - Kinn (L212149), Ölfus
Lögð er fram breyting á deiliskipulagi fyrir Kinn í Ölfusi. Með deiliskipulagsbreytingunni er breytt nýtingarhlutfall lóðar í samræmi við aðalskipulagsbreytingu, dags. 26.01.2023, fyrir landbúnaðarsvæði L1, lóðarstærð yfir 3 ha. Heimild er til að nýtingarhlutfall lóðar megi vera allt að 0,15. Breyting á greinagerð: Byggingareitur 1: Heimilt er að byggja allt að 230 m2 íbúðarhús á 1 hæð, ásamt allt að 70 m2 bílskúr eða samt. 300 m2. Byggingareitur 2: Heimilt er að byggja gróðurhús og tilheyrandi geymslu- og aðstöðuhús allt að 5.600 m2. Mænishæð allt að 6 m frá gólfplötu. Byggingareitur 3: Heimilt er að byggja gróðurhús úr stálgrind með plastdúk og tilheyrandi aðstöðu allt að 700 m2. Mænishæð allt að 4 m frá gólfhæð. Heildarbyggingamagn verði þá mest 6.600 m2. Nýtingahlutfall lóðar verði þá mest 0,15.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2603068 - Hjarðarból - útvíkkun deiliskipulags - DSKbr
Endurkoma eftir athugasemdaferli
Skipulagið var auglýst en aðeins Vegagerðin gerði athugasemdir. Gerðar voru breytingar til að bregðast við umsögninni.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2606035 - Árbæjarhverfi - Breyting landnotkunar úr samfélagsþjónustu í íbúðasvæði ASKbr
Lögð er fram aðalskipulagsbreyting er snýr að Árbæjarhverfi í Ölfusi. Í breytingunni felst að samfélagsþjónustusvæði S16 víkur fyrir stækkun íbúðasvæðisins ÍB 13.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2401047 - Þorkelsgerði 2C, nýtt DSK
Endurkoma, endurauglýst þar sem 12 mánuðir eru liðnir frá lokum auglýsingarfrests. Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir spilduna Þorkelsgerði 2c. Í skipulaginu felst að landinu er skipt upp í 4 lóðir, eina íbúðarhúsalóð og 3 frístundahúsalóðir.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2609031 - Akurgerði - stækkun byggingarreits Óv. DSKbr
Lögð er fram deiliskipulagsbreyting fyrir landið Akurgerði. Breytingin felur í sér að nýjum byggingarreitum B3 og B4 bætt við utan um þær byggingar sem fyrir eru á skipulagssvæðinu auk skilmála. Heitinu smáhýsi í greinargerð er breytt í gistihús. Breyting deiliskipulags er í samræmi við aðalskipulag þar sem jörðin samræmist heimildum landbúnaðarlands með skilmálum til fastrar búsetu.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgrein 43. greinar skipulagslaga nr 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
8. 2605050 - Vesturgljúfur 8 - Athafnasvæði í Verslunar og þjónustusvæði - óv. ASKbr
Lögð er fram óveruleg aðalskipulagsbreyting fyrir lóðirnar Vesturgljúfur 2-8. Breytingin felur í sér að landnotkun er breytt úr athafnasvæði í verslunar og þjónustusvæðið VÞ26.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Aðalskipulagsbreytingin er samþykkt með fyrirvara um samþykki þeirra lóðarhafa sem skipulagsbreytingin tekur til. Breytingin felur í sér að athafnasvæði er breytt í verslunar og þjónustusvæði sem almennt myndi teljast minna íþyngjandi fyrir nærliggjandi íbúa. Er það mat nefndarinnar með hliðsjón af eðli, umfangi og áhrifum á ytri aðila að breytingin falli undir 2. mgr. 36. gr. og teljist óveruleg í skilningi skipulagslaga. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna tillöguna fyrir nærliggjandi lóðum og ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

9. 2609017 - Riftún Sumarhúsalóð - DSK
Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir sumarhúsalóðina Riftún. Á lóðinni verði heimilt að byggja sumarhús ásamt gestahúsi í samræmi við ákvæði aðalskipulags Ölfuss.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

10. 2609032 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Niðurrennslislögn á Hellisheiði
ON (Orka Náttúrunnar) hyggst stækka niðurrennslissvæði Hellisheiðarvirkjunar og hefja niðurrennsli í tvær holur nærri Gígahnúk og tvær holur nærri Lakahnúkum. Holur við Lakahnúka hafa verið nýttar til niðurrennslis í mörg undanfarin ár og í dag liggur að þeim bráðabirgðalögn sem er ofanjarðar. Holur við Gígahnúk hafa fram til þessa ekki verið nýttar til niðurrennslis, en þær voru á sínum tíma boraðar sem mögulegar vinnsluholur. Framkvæmdin felst í að lögð verður ný neðanjarðarlögn að holunum að undanskildum stuttum kafla undir Hringveg. Þar verður núverandi lögn nýtt áfram en að öðru leyti verður bráðabirgðalögnin tekin niður.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
11. 2609007 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Endurheimt votlendis að Sogni
Lögð er fram beiðni um framkvæmdaleyfi er snýr að endurheimtingu votlendis á 25 ha svæði á jörðinni Sogn L171801. Fyrirhugað er að fylla uppí/stífla 4264 metra af skurðum.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

12. 2609018 - Rannsóknarborholur í Meitlum - fyrirspurn um málsmeðferð
Orkuveita Reykjavíkur leitar til Sveitarfélagsins með ósk um afstöðu gagnvart fyrirhugaðri jarðhitaleit í sunnanverðum Meitlum. Fyrirtækið óskar eftir samráði og leiðsögn um hvort og þá hvernig best sé að koma málinu í farveg.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin hefur áður synjað málum er varða rannsóknarboranir í Meitlum sunnanverðum. Afstaða nefndarinnar er óbreytt.

Geir Höskuldsson D-lista tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu að afgreiðslu:

Bæjarstjórn samþykkir að breyta afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar og felur bæjarstjóra, í samráði við skipulagsfulltrúa, að veita Orkuveitu Reykjavíkur skriflegar leiðbeiningar í samræmi við 7. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í leiðbeiningunum skal svara sérstaklega þeim þremur spurningum sem settar eru fram í erindinu.

Leiðbeiningarnar fela hvorki í sér samþykki né synjun fyrirhugaðra framkvæmda og binda ekki síðari afgreiðslu sveitarfélagsins komi fram formleg umsókn um breytingu á skipulagi eða framkvæmdaleyfi.

Samþykkt samhljóða.

Fundargerðir til staðfestingar
13. 2609001F - Bæjarráð Ölfuss - 472
Fundargerð 472.fundar bæjarráðs frá 03.09.2026 til staðfestingar.

1. 2609001 - Mosfellsheiðarvirkjanir I og II. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2609002 - Beiðni um undanþágu vegna íbúðar fyrir aldraða - Trúnaðarmál. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2609004 - Beiðni um aukningu á stöðugildum í dagdvöl aldraðra. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2609005 - Beiðni um viðauka vegna viðhalds. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
14. 2608009F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 54
Fundargerð 54.fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 27.08.2026 til staðfestingar.

1. 2608051 - Erindisbréf nefndarinnar og tillögur að breytingum. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2608024 - Grunnskólinn í Þorlákshöfn - ísl. æskulýðsrann. Til kynningar.
3. 2608048 - Erindi er varðar Tækwondóæfingar og stofnun deildar. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2608047 - Erindi frá yfirþjálfurum Umf. Þórs og Knattspyrnufélagsins Ægis.
Pálmi Þór Ásbergsson tók til máls undir þessum lið. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2608050 - Stundatafla íþróttasalar og fimleikasalar veturinn 2026-2027). Til kynningar.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
15. 2609004F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 89
Fundargerð 89.fundar framkvæmda- og hafnarnefndar frá 16.09.2026 til staðfestingar.

1. 2608038 - Dýpkun hafnarinnar (ytri dýpkun). Til kynningar.
2. 2608028 - Flataskersbryggja - framkvæmdir. Til kynningar.
3. 2604019 - Skilagrein fyrir sorphirðu í sveitafélaginu Ölfus árið 2025. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2609029 - Umsókn og beiðni um formlegt samráð. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2512090 - Hafnarsvæði H1 - Nýtt deiliskipulag. Til kynningar.
6. 2402060 - DSK- reit H3 á hafnarsvæði. Til kynningar.
7. 2609021 - Beiðni um stækkun lóðar - Skarfasker 2. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
8. 2608027 - Gatnagerð - Víkursandur. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
9. 2601048 - Framkvæmdaráætlun 2025-26. Til kynningar.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.


16. 2609002F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 119
Fundargerð 119.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 04.09.2026 til staðfestingar.

1. 2608056 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Akurholtssel 2, Ölfus. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2607042 - Umsókn um deiliskipulag -eða breytingu - Birkiból 2, Ölfus. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2608039 - Umsókn um deiliskipulag -eða breytingu - Kinn (L212149), Ölfus. Tekið fyrir sérstaklega.
4. 2608071 - Nafnabreyting Akurholt 8 - Svartaskarð. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2609006 - Gönguþverun Ölfusbraut. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2607021 - Eima - Deiliskipulagsbreyting - Landbúnaðarlóðir. Tekið fyrir sérstaklega.
7. 2603068 - Hjarðarból - útvíkkun deiliskipulags - DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
8. 2609007 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Endurheimt votlendis að Sogni. Tekið fyrir sérstaklega.
9. 2606035 - Árbæjarhverfi - Breyting landnotkunnar úr samfélagsþjónustu í íbúðasvæði ASKbr. Tekið fyrir sérstaklega.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.

17. 2609006F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 120
Fundargerð 120.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 21.09.2026 til staðfestingar.

1. 2609011 - Umsókn um leyfi til hænsnahalds - Oddabraut 12, 815. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2609012 - Umsókn um leyfi til hænsnahalds - Reykjabraut 6, 815. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2606022 - Beiðni um heimild til takmarkaðrar efnistöku í landi Hamragils. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2609017 - Riftún Sumarhúsalóð - DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
6. 2609020 - Umferðaröryggi í búðahverfi - Beiðni um lokun tengingar úr biskupabúðum í Faxabraut. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2401047 - Þorkelsgerði 2C, nýtt DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
8. 2609031 - Akurgerði - stækkun byggingarreits Óv. DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
9. 2605050 - Vesturgljúfur 8 - Athafnasvæði í Verslunar og þjónustusvæði - óv. ASKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
10. 2609032 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Niðurrennslislögn á Hellisheiði. Tekið fyrir sérstaklega.
11. 2609033 - Aðstöðuumbætur í Skötubót - beiðni um heimild til að gera tröppur og útisturtu. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
12. 2609034 - Laut - 3 íbúðalóðir - nýtt DSK. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
13. 2609006 - Gönguþverun Ölfusbraut. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
14. 2609018 - Rannsóknarborholur í Meitlum - fyrirspurn um málsmeðferð. Tekið fyrir sérstaklega.
15. 2608029 - Leyfi til að dreifa PheLyz (lífhvata VAXA) á landi í Ölfusi. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
Fundargerðir til kynningar
18. 1701032 - Fræðslumál Fundagerðir stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga.
Fundargerð 220.fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga frá 25.08.2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
19. 1701026 - Brunamál Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu
Fundargerð 6.fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu frá 18.08.2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
20. 1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 1001.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.08.2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
21. 2009027 - Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Fundargerð 93.fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 27.04.2026, 94.fundar frá 18.06.2026, 95.fundar frá 07.08.2026 og 96.fundar frá 21.08.2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
22. 1602012 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar SASS.
Fundargerð 638.fundar stjórnar SASS frá 04.09.2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:50 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?