Fundargerðir

Til bakaPrenta
Íþrótta- og tómstundanefnd - 56

Haldinn Fundarsalur íþróttamiðstöðvar,
04.11.2026 og hófst hann kl. 18:30
Fundinn sátu: Davíð Arnar Ágústsson formaður,
Sigríður María B.Fortescue varaformaður,
Sævar Elí Kjartansson aðalmaður,
Ingunn Guðnadóttir aðalmaður,
Pálmi Þór Ásbergsson aðalmaður,
Ragnar M. Sigurðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi,
Fundargerð ritaði: Ragnar M. Sigurðsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2610157 - Erindi frá Golfklúbbi Þorlákshafnar, heilsárs íþróttastarf, öruggari samgöngur, byggingar- og skipulagsmál
Bókun um framtíðarsýn og uppbyggingaráform Golfklúbbs Þorlákshafnar
Á fundinn mættu Ingvar Jónsson og Edvin Roald og voru þeir með erindi um framtíðarsýn og uppbyggingaráform Golfklúbbs Þorlákshafnar
Íþrótta- og tómstundanefnd tekur jákvætt í metnaðarfulla framtíðarsýn og uppbyggingaráform Golfklúbbs Þorlákshafnar. Hugmyndir klúbbsins fela í sér spennandi tækifæri til að þróa svæðið við Skötubót sem öfluga íþrótta- og útivistarmiðstöð fyrir kylfinga, almenning, börn, ungmenni og ferðafólk.
Nefndin telur að fyrirhuguð uppbygging geti eflt fjölbreytta starfsemi allt árið, styrkt golfíþróttina og skapað Þorlákshöfn sérstöðu, meðal annars með mögulegri uppbyggingu alþjóðlegrar afreksmiðstöðvar og þjóðarleikvangs golfíþróttarinnar.
Nefndin fagnar áherslu klúbbsins á áfangaskipta uppbyggingu og telur mikilvægt að áfram verði unnið að útfærslu hugmyndanna í samstarfi við sveitarfélagið, íþróttahreyfinguna og aðra mögulega samstarfsaðila, með hliðsjón af kostnaði, fjármögnun og rekstri.
Í erindi Golfklúbbs Þorlákshafnar, dags. 19. október 2026, er óskað er eftir samtali og samstarfi við Sveitarfélagið Ölfus um nokkur mismunandi málefni er varða starfsemi klúbbsins, öryggi iðkenda, uppbyggingu og þjónustu.

Öryggi barna á leið til og frá golfvellinum:
Íþrótta- og tómstundanefnd tekur undir áhyggjur Golfklúbbs Þorlákshafnar af öryggi barna og unglinga á leið til og frá íþróttasvæðinu. Nefndin leggur til að málinu verði vísað til bæjarráðs til umfjöllunar og ákvörðunar um framhald þess.
Heilsárs íþróttastarf og endurskoðun framlags:
Íþrótta- og tómstundanefnd tekur jákvætt í erindi Golfklúbbs Þorlákshafnar um endurskoðun framlaga til barna- og unglingastarfs í tengslum við heilsársstarfsemi klúbbsins. Málinu vísað til fjárhagsáætlunarvinnu sveitarfélagsins.
Samkomulag um frekari verkefni:
Íþrótta- og tómstundanefnd tekur jákvætt í erindi Golfklúbbs Þorlákshafnar um samstarf vegna tiltekinna verkefna innan sveitarfélagsins og leggur til að unnið verði að gerð þjónustusamnings þar sem kveðið verði á um verkefni, ábyrgð, kostnað og greiðslufyrirkomulag. Erindi um slátt og umhirðu grassvæða er vísað til umsagnar umhverfisstjóra.
Hleðslustöðvar við golfskálann:
Íþrótta- og tómstundanefnd telur að erindið falli utan verksviðs nefndarinnar og leggur til að því verði vísað til framkvæmda- og hafnarnefndar til afgreiðslu.


 
Gestir
Edvin Roald - 18:30
Ingvar Jónsson - 18:30
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:00 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?