| |
| 1. 2510047 - Fjárhagsáætlun hafnarinnar 2026 | |
| Afgreiðsla: Lagt fram, nefndin þakkar upplýsingarnar. Nefndin óskar eftir að fá uppfærða fjárhagsáætlun fyrir verkefnum inná næsta fund. | | |
|
| 2. 2606047 - Ráðning vélstjóra á dráttarbát | |
Afgreiðsla: Nefndin tekur undir með hafnarstjóra að mikilvægt sé að tryggja mönnun dráttarbáts hafnarinnar og þar með rekstraröryggi hafnarinnar. Fram hefur komið að ekki hefur tekist að ráða vélstjóra í fullt starf. Nefndin samþykkir að veita hafnarstjóra heimild til að ganga til tímabundinna samninga við starfsmannaleigu um vélstjóra á dráttarbát þar til fastir starfsmenn fást ráðnir. Heimildin er veitt að því gefnu að viðkomandi starfsmenn uppfylli lögbundin starfsréttindi og hæfniskröfur og að kostnaður rúmist innan fjárheimilda hafnarinnar eða verði lagður sérstaklega fyrir eftir því sem við á. Nefndin felur hafnarstjóra jafnframt að halda áfram vinnu við ráðningu starfsmanna í fullri vinnu og upplýsa nefndina um framvindu málsins.
| | |
|
| 3. 2606046 - Ekjubrú í Þorlákshöfn - viðgerð á tjökkum | |
| Afgreiðsla: Nefndin samþykkir að óska eftir viðauka í framkvæmdina og felur hafnarstjóra að klára framkvæmdir. | | |
|
| 4. 2603033 - Byggingarstjórn- og eftirlit með viðbyggingu grunnskóla | |
| Afgreiðsla: Samþykkt að taka tilboði lægstbjóðanda Verksýn ehf. | | |
|
| 5. 2604020 - Framkvæmdir við opinn svæði 2026 | |
| Afgreiðsla;: Lagt fram. Nefndin þakkar fyrir upplýsingarnar | | |
|
| 6. 2601048 - Framkvæmdaráætlun 2025-26 | |
| Afgreiðsla: Lagt fram, nefndin þakkar upplýsingarnar. | | |
|