Vígsla nýrrar sögusýningar við Selvogsbraut

Í tilefni af 75 ára afmæli Þorlákshafnar verður ný útilistasýning við Selvogsbraut afhjúpuð föstudaginn 7. ágúst kl. 17:00.

Sýningin varpar ljósi á sögu Þorlákshafnar og söguskiltin sem hafa verið sett upp víðs vegar um bæinn á undanförnum árum. Jafnframt verða eldri söguskilti endurbætt og uppfærð til að varðveita og miðla sögu samfélagsins á aðgengilegan og lifandi hátt.

Verkefnið er liður í hátíðarhöldum vegna 75 ára afmælis Þorlákshafnar og markar mikilvægan áfanga í varðveislu menningararfs bæjarins.

Hönnun sýningarinnar og endurbættra söguskilta var í höndum Argh ehf., sem vann verkefnið í nánu samstarfi við fræðslusvið Ölfuss. SB skiltagerð annaðist framleiðslu og uppsetningu skiltanna.

Allir eru hjartanlega velkomnir á vígsluna.

Sjá nánar frétt um sögusýninguna

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?