Þorlákshafnarbærinn stóð á háum sjógarði þar sem nú stendur svokölluð gamla bræðslan við Hafnarskeið og sneri stöfnum mót suðri. Bærinn var reistur á árunum 1880–1885.
Í tilefni af 75 ára afmæli þéttbýlisins Þorlákshafnar verður opnuð ný útilistasýning við Selvogsbraut þar sem saga bæjarins og söguskiltin sem hafa verið sett upp víðs vegar um Þorlákshöfn á undanförnum árum verða í brennidepli.
Á síðustu árum hefur Sveitarfélagið Ölfus, í samstarfi við heimamenn og áhugafólk um sögu og menningu svæðisins, unnið markvisst að því að varðveita og miðla sögu Þorlákshafnar á lifandi og aðgengilegan hátt. Einn mikilvægasti þáttur þeirrar vinnu hefur verið uppsetning söguskilta á lykilstöðum um bæinn þar sem saga staðarins er sögð með myndum, frásögnum og heimildum.
Samhliða afmælisárinu stendur nú yfir endurbót á eldri söguskiltum. Þau fá uppfært útlit og efni þar sem þess er þörf, þannig að þau haldi áfram að vera aðgengileg, fræðandi og áhugaverð fyrir íbúa og gesti um ókomin ár. Nýja sýningin við Selvogsbraut er liður í þeirri vinnu og dregur fram mikilvægi söguskiltanna sem hluta af menningararfi Þorlákshafnar. Fyrirhugað er að vígja sýninguna á bæjarhátíðinni.
Hönnun sýningarinnar og endurbættra söguskilta var í höndum Argh ehf., sem vann verkefnið í nánu samstarfi við fræðslusvið Ölfuss. SB skiltagerð annaðist framleiðslu og uppsetningu skiltanna.
Afmælisárið er kjörið tækifæri til að staldra við og rifja upp þá merkilegu vegferð sem Þorlákshöfn hefur farið frá því að þéttbýli tók að myndast fyrir 75 árum. Sagan er órjúfanlegur hluti af sjálfsmynd samfélagsins og með endurbættum söguskiltum og nýrri útilistasýningu er henni gert hátt undir höfði um leið og horft er til framtíðar.
