Fundargerðir

Til bakaPrenta
Framkvæmda- og hafnarnefnd - 73

Haldinn í Þjónustumiðstöð,
15.10.2025 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Guðbergur Kristjánsson formaður,
Grétar Ingi Erlendsson varaformaður,
Erla Sif Markúsdóttir aðalmaður,
Gunnsteinn R. Ómarsson aðalmaður,
Berglind Friðriksdóttir aðalmaður,
Sigmar Björgvin Árnason sviðsstjóri,
Benjamín Þorvaldsson hafnarstjóri,
Fundargerð ritaði: Sigmar B Árnason, Sviðstjóri og byggingarfulltrúi
Inná fundin undir mál nr 1 og 2 mætir Sigurður Áss eftirlitsmaður með framkvæmdum og fer yfir stöðu þeirra.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2406028 - Suðurvarabryggja-Yfirborðsfrágangur
Sigurður Áss, eftirlitsmaður verksins,fór yfir stöðu framkvæmda.
Afgreiðsla: Nefndin þakkar upplýsingarnar.
2. 2510047 - Fjárhagsáætlun hafnarinnar 2026
Hafnarnefnd tók fyrir drög að framkvæmdaáætlun hafnarinnar vegna ársins 2026. Áætlaður heildarkostnaður framkvæmda nemur 1.338,8 m.kr. án virðisaukaskatts, þar af er áætlað að framkvæmdir að fjárhæð 1.122 m.kr. verði unnar á árinu. Kostnaðarhlutdeild sveitarfélagsins er áætlun 656 m.kr., hlutdeild ríkisins 465 m.kr., og eftirstöðvar verkefna sem flytjast til ársins 2027 nema 217 m.kr. Áætlunin er lögð fram með fyrirvara um samgönguáætlun ríkisins.

Helstu verk ársins 2026 eru eftirfarandi:
-Dýpkun ytri og innri rennu ? 123 þús. rúmmetrar, áætlaður kostnaður 138,8 m.kr.
-Dýpkun innan hafnar ? gröftur 13,5 þús. rúmmetrar, 88,0 m.kr.
-Flatskersbryggja, 60 metra löng með 9,5 m hönnunardýpi, 312,0 m.kr. (42 m.kr. eftirstöðvar 2027).
-Skarfaskersbryggja, endurbygging og nýr fender, 135,0 m.kr.
-Rampur, endurbyggður 25 metra, rifinn upp og endurbyggður, 205,0 m.kr. (90 m.kr. eftirstöðvar 2027).
-Vökvaknúinn rampur, 20 m langur og 14 m djúpur, 295,0 m.kr. (85 m.kr. eftirstöðvar 2027).
-Frágangur við gámavöll og önnur verk, 165,0 m.kr.

Afgreiðsla: Hafnarnefnd samþykkir framlagða framkvæmdaáætlun fyrir árið 2026 og felur hafnarstjóra að vinna áfram að undirbúningi og fjármögnun einstakra verkefna í samræmi við áætlunina. Nefndin telur sérstaklega mikilvægt að hefja strax undirbúning framkvæmda við Flataskersbryggju en fyrir liggur þröngt verður um móttöku áburðar sem og útflutning seiða og jarðefna ef sú framkvæmd dregst. Nefndin felur því hafnarstjóra að hefja strax undirbúning þeirrar framkvæmdar, þar með talið hönnun, efnispantanir og annað sem við á.
3. 2501021 - Framkvæmdaráætlun 2024-25
Sviðsstjóri fór yfir stöðu helstu verklegar framkvæmdir sem eru á áætlun 2024-25.
Afgreiðsla: Lagt fram, nefndin þakkar upplýsingarnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?