Langar þig eða einhvern sem þú þekkir að fá félagsskap og reglulega heimsókn?
Heimsóknavinaverkefni Ölfuss býður upp á notalega samveru, spjall og aukin félagsleg tengsl.
Mikil ánægja var með þátttöku á nýliðanámskeiði fyrir heimsóknavini sem haldið var í lok október í Þorlákshöfn.
Alls sátu 13 manns námskeiðið og hafa því bæst í hóp sjálfboðaliða sem vilja leggja sitt af mörkum til að efla félagsleg tengsl og draga úr einmanaleika í samfélaginu.
Heimsóknavinaverkefnið er samstarfsverkefni fjölskyldu- og fræðslusviðs Ölfuss, Rauða krossins, Kvenfélags Þorlákshafnar, Félags eldri borgara í Ölfusi og sjálfboðaliða. Markmið verkefnisins er að skapa dýrmætar samverustundir og stuðla að aukinni félagslegri þátttöku íbúa.
Við þökkum öllum þátttakendum fyrir áhugann og hlökkum til að sjá verkefnið vaxa og eflast til hagsbóta fyrir samfélagið í Ölfusi.
Heimsóknavinaverkefni Ölfuss býður upp á notalega samveru, spjall og félagsleg tengsl. Ef þú hefur áhuga á að fá heimsóknavin, eða vilt benda á verkefnið fyrir aðstandanda, hvetjum við þig til að hafa samband.
Nánari upplýsingar um verkefnið verður kynnt betur síðar í nóvember.
Saman gerum við samfélagið hlýrra. 💛