346.fundur bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Ölfuss

Bæjarstjórn Ölfuss - 346

 

FUNDARBOÐ

346. fundur bæjarstjórnar

verður haldinn í Ráðhúsi Ölfuss, fimmtudaginn 26. júní 2025 og hefst kl. 16:30.

Dagskrá :

Almenn mál

1.

1806017 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss 2022-2026

 

Kosningar í embætti innan bæjarstjórnar til eins árs skv.7.gr. samþykktar um stjórn Sveitarfélagsins Ölfuss.

1. Kosning forseta til eins árs.
2. Kosning 1. varaforseta til eins árs.

 

   

2.

1806017 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss 2022-2026

 

Kosning þriggja aðalmanna og þriggja varamanna í bæjarráð til eins árs sbr. 27. gr. samþykktar um stjórn Sveitarfélagsins Ölfuss nr. 434/2024. Kjósa skal formann og varaformann.

 

   

3.

2105036 - Fundartími bæjarstjórnar

 

Lagt er til að næsti reglulegi fundur bæjarstjórnar verði 28. ágúst nk.og að bæjarráði Sveitarfélagsins Ölfuss verði falin fullnaðarafgreiðsla mála og sömu heimildir og bæjarstjórn hefur á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur.

 

   

4.

2305013 - Samþykkt um stjórn Sveitarfélagsins Ölfuss

 

Breytingar á samþykktum Sveitarfélagsins Ölfuss, síðari umræða.

 

   

5.

2501019 - Landeldisgjald

 

Breyting á gjaldskrá Þorlákshafnar, síðari umræða.

 

   

6.

2506011 - Uppgræðslusjóður Ölfuss. Lokun sjóðs 1. janúar 2025.

 

Lagt er til að Uppgræðslusjóður Ölfuss verði lagður niður frá og með 1.janúar 2025 og verkefni hans felld undir A-hluta starfsemi sveitarfélagsins.

Sjóðurinn hefur í raun lokið hlutverki sínu og búið er að afskrifa allar eignir hans.

 

   

7.

2110033 - DSK Akurgerði ferðaþjónustuhús

 

Endurauglýsing
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Akurgerði, L171635, í Ölfusi. Skipulagssvæðið er um 18 ha að stærð innan jarðarinnar Akurgerði og er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi Ölfuss 2020-2036. Tillagan er í samræmi við aðalskipulag sem heimilar atvinnurekstur ótengdan landbúnaði að vissu marki, og gerir ráð fyrir uppbyggingu á íbúðarhúsum og smáhýsum á tilgreindum byggingarreitum, ásamt skilgreiningu aðkomu, lóðarmarka og fráveitulausna.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulagið er samþykkt með fyrirvara um að aflað sé samþykki stjórnar vatnsveitu um neysluvatnsöflun. Þá bendir nefndin á að lóð 1a er undir 5000 m2 en samkvæmt skilmálum aðalskipulags er lágmarksstærð lóða á landbúnaðarsvæði 5000 m2. Því þarf að stækka þá lóð.
Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 þegar brugðist hefur verið við áðurnefndum fyrirvörum.

 

   

8.

2402057 - Br. DSK Gljúfurárholt 23 og 24

 

Endurauglýsing
Lögð er fram breyting á deiliskipulagi fyrir Gljúfurárholt 23 og 24. Í tillögunni er gert ráð fyrir að fjölga byggingarreitum og að Gljúfurárholti 23 verði skipt upp. Þá er fyrirhugað að reisa megi smáhýsi til bændagistingar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr 123/2010.

 

   

9.

2503027 - Hellisheiðarvirkjun - Ný lóð í nýsköpunarkjarna - 22. breyting deiliskipulags

 

Endurkoma eftir athugasemdaferli
Skipulagið var auglýst og er athugasemdafresti lokið. Engar athugasemdir voru gerðar við skipulagið og er það því lagt fram óbreytt.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

10.

2506024 - Hafnarsvæði - lóð fyrir hreinsistöð - óv. DSKbr.

 

Lögð er fram óveruleg breyting á skipulagi hafnarsvæðis. Breytingin felst í stækkun lóðar undir væntanlega hreinsistöð fyrir Sveitarfélagið Ölfus.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgrein 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

11.

2506021 - Hellisheiðarvirkjun 23. DSKbr - stækkun lóðar fyrir neyðarlosun - óv. DSKbr

 

Lögð er fram tillaga að 23. breytingu deiliskipulags Hellisheiðarvirkjunar. Breytingin felst í að lóð fyrir neyðarlosun sem staðsett er við hraunjaðar vestan Kolviðarhólsreits stækkar til að skapa meira svigrúm fyrir staðsetningu svelghola vegna neyðarlosunar frá Hellisheiðarvirkjun. Lóðin er í gildandi deiliskipulagi 2,5 ha en stækkar um 1,68 ha og verður því eftir stækkun um 4,18 ha.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgrein 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

Fundargerðir til staðfestingar

12.

2504005F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 68

 

Fundargerð 68.fundar framkvæmda- og hafnarnefndar frá 21.05.2025 til staðfestingar.

 

   

13.

2505010F - Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 33

 

Fundargerð 33.fundar fjölskyldu- og fræðslunefndar frá 04.06.2025 til staðfestingar.

 

   

14.

2505011F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 95

 

Fundargerð 95.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 04.06.2025 til staðfestingar.

 

   

15.

2505007F - Bæjarráð Ölfuss - 445

 

Fundargerð 445.fundar bæjarráðs frá 05.06.2025 til staðfestingar.

 

   

16.

2506003F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 49

 

Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 05.06.2025 til staðfestingar.

 

   

17.

2506004F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 96

 

Fundargerð 96.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 18.06.2025 til staðfestingar.

 

   

18.

2506006F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 69

 

Fundargerð 69.fundar framkvæmda- og hafnarnefndar frá 18.06.2025 til staðfestingar.

 

   

19.

2506002F - Bæjarráð Ölfuss - 446

 

Fundargerð 446.fundar bæjarráðs frá 19.06.2025 til staðfestingar.

 

   

Fundargerðir til kynningar

20.

1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

 

Fundargerð 979.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 16.05.2025, 980.fundar frá 27.05.2025, 981.fundar frá 13.06.2025 og 982.fundur frá 16.06.2025 til kynningar.

 

   

21.

1602012 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar SASS.

 

Fundargerð 623.fundar stjórnar SASS frá 06.06.2025 til kynningar.

 

   

22.

1605028 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir Héraðsnefndar Árnesinga.

 

Fundargerð 30.fundar framkvæmdastjórnar Héraðsnefndar Árnesinga frá 22.04.2025 og 31.fundar frá 03.06.2025 til kynningar.

 

   

23.

2009052 - Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Suðurlands

 

Fundargerð 245.fundar Heilbrigðisnefndar Suðurlands frá 20.06.2025 til kynningar.

 

   

 

24.06.2025

Elliði Vignisson, bæjarstjóri.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?