Lúðrasveit Þorlákshafnar og Stefán Jakobsson

Lúðrasveit Þorlákshafnar hefur látið útsetja fyrir sig valin lög úr safni Magnúsar Þórs Sigmundssonar og það vita þeir sem þekkja til að úr nógu er að velja þar enda Magnús Þór einn af ástsælustu og afkastamestu lagahöfundum sem Íslendingar eiga. 

Söngvarinn Stefán Jakobsson, sem er hvað þekktastur fyrir að syngja með hljómsveit sinni Dimmu, mun syngja með Lúðrasveitinni nokkur laganna og einnig mun Magnús Þór sjálfur vera í hlutverki kynnis og segja áheyrendum sögur af lögunum og ferli sínum. 

Um þrenna tónleika verður að ræða:
- Ráðhúsi Ölfuss í Þorlákshöfn fimmtudaginn 18. maí kl. 20.30
- Á Hótel Örk í Hveragerði föstudaginn 19. maí kl. 20.30 
- Í Gamla bíó Reykjavík sunnudaginn 21. maí kl. 20.30


200 miðar eru í boði í Þorlákshöfn, þeir verða seldir í Kompunni og er ekki posi á staðnum (en banki nánast við hliðina á!).
Midi.is sér um miðasölu á tónleikana í Hveragerði og Reykjavík.

Lögin sem áheyrendur eiga von á að heyra eru meðal annarra Jörðin sem ég ann, Álfar, Ísland er land þitt, Þú átt mig ein, Ást, Freyja, Dag sem dimma nátt, Ef ég gæti hugsanna minna og svo mætti lengi telja... 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?