Ókeypis hellaferð í Raufarhólshelli

The Lava Tunnel býður í fría hellaskoðun um helgina til að sýna ykkur þær framkvæmdir sem hafa staðið í undanfarna mánuði til að gera hellinn aðgengilegri um leið og stuðla að verndun hans. Hver ferð tekur u.m.þ.b klukkutíma og ferðirnar eru farnar á klukkutíma fresti frá kl. 10 – 17 bæði laugardag og sunnudag. Vinsamlegast klæðið ykkur vel og mælt er með góðum skóm.

Vinsamlega hafið í huga að framkvæmdir eru enn í gangi svo sýna þarf aðgát á svæðinu. Leiðsögn fer að mestu fram á ensku. Vinsamlega mætið a.m.k 10 mínútur fyrir áætlaða brottför.

Það þarf að panta hellaskoðunina þar sem takmarkað pláss er í hverja ferð.

Panta hellaskoðun

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?