Saumastofan - 7. sýning

Leikfélag Ölfuss frumsýnir verkið Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson þann 8. febrúar næstkomandi. Leikstjóri að þessu sinni er Guðfinna Gunnarsdóttir en hún hefur starfað með Leikfélagi Selfoss frá barnsaldri og er starfandi formaður Bandalags íslenskra leikfélaga. Níu leikarar taka þátt í sýningunni en það eru þau Álfheiður Østerby Christensen, Árný Leifsdóttir, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Daníel Máni Óskarsson, Erla Dan Jónsdóttir, Ingólfur Arnarson, Jónheiður Ísleifsdóttir, Magnþóra Kristjánsdóttir og Róbert Karl Ingimundarson. Frumsýning verður föstudaginn 8. febrúar í Versölum. Miðasala í síma 692-0939 milli kl. 17-20 og á midasalalo@gmail.com. Miðaverð kr. 2500.

Frumsýning 8. febrúar kl. 20:00
2. sýning  10. febrúar kl. 20:00
3. sýning  12. febrúar kl. 20:00
4. sýning 19. febrúar kl. 20:00
5. sýning 22. febrúar kl. 20:00
6. sýning 24. febrúar kl. 20:00
7. sýning 15. mars kl. 20:00
8. sýning 17. mars kl. 20:00
9. sýning 19. mars kl. 20:00
10. sýning 22. mars kl. 20:00
11. sýning 24. mars kl. 20:00

Tryggið ykkur miða í tíma á þessa frábæru sýningu.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?