Úrslitaviðureign í Útsvarinu.

 

Eins og við öll vitum, eða það vona ég allavega, þá er liðið okkar komið áfram í úrslit í Útsvarinu. 

Það var lið Ísafjarðarbæjar sem hafði betur gegn liði Hafnfirðinga, í síðari úrslitaviðureign keppninnar, og munum við því mæta liðinu að vestan. Í liði Ísafjarðarbæjar eru Gylfi Ólafsson, Tinna Ólafsdóttir og Greipur Gíslason. 
Lið Ölfuss er eins og áður skipað þeim Árnýju Leifsdóttur, Hannesi Stefánssyni og Magnþóru Kristjánsdóttur. 
 

Þátturinn verður 18. maí, klukkan 20:00 og er eins og venjulega öllum opinn. Útsendingin fer fram í Efstaleiti 1, sjónvarpshúsinu og er mæting klukkan 19:40.

Ölfus hefur aldrei komist eins langt í útsvarinu og því mikilvægt að við sýnum liðinu okkar góðan stuðning með því að fylla sjónvarpssalinn!

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?