Aðventudagskrá á ráðhústogi frestað fram á mánudag!

Aðventustund 2012
Aðventustund 2012
Ákveðið hefur verið að fresta dagskrá sem vera átti á ráðhústorginu klukkan 18:00 sunnudaginn 30. nóvember, fram til mánudagsins 1. desember vegna veðurs.

Ákveðið hefur verið að fresta dagskrá sem vera átti á ráðhústorginu klukkan 18:00 sunnudaginn 30. nóvember, fram til mánudagsins 1. desember vegna veðurs.

Það er spáð vitlausu veðri seinnipartinn á morgun og ætti fólk þá ekki að vera á ferðinni.

Sunnudagaskóli og aðventustund í kirkju verða þó á sínum stað í kirkjunni, en dagskrá klukkan 18:00 verður frestað eins og fyrr segir fram á mánudaginn 1. desember klukkan 18:00.

Dagskráin verður með hefðbundu sniði þó dagurinn verði óhefðbundinn. Lúðrasveitin spilar jólalög, kórar grunnskólans leiða fjöldasöng og Kiwanismaður flytur stutt ávarp áður en ljós verða tendruð á jólatrénu.  Síðan vonumst við til þess að jólasveinar kíki í heimsókn auk þess sem Landsbankinn og Kiwanismenn bjóða gestum upp á heitt kakó og piparkökur.

Í kjölfarið er upplagt að rölta á milli fyrirtækja og njóta þess að fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir verða með opið til kukkan 21:00 og bjóða upp á margvísleg tilboð, kynningar, matseðla, handverk og skemmtilegheit.

Nú þurfum við ykkar aðstoð við að koma þessum upplýsingum á framfæri og þá sérstaklega til barnafjölskyldna og okkar fjölmörgu nýbúa. Það væri vel þegið að þið bönkuðuð einfaldlega upp á hjá nágrönnum og létuð vita en betra að það sé gert á meðan veðrið er skaplegt.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?