Afreks – og styrktarsjóður Sveitarfélagsins Ölfuss

Íþrótta – og tómstundanefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir styrki úr Afreks – og styrktarsjóði Sveitarfélagsins Ölfuss.

Markmið sjóðsins er m.a. að veita afreksíþróttafólki í hóp/einstaklingsíþróttum í Sveitarfélaginu Ölfusi fjárhagslegan styrk vegna æfinga og/eða keppni, og þannig skapa sem best tækifæri til að stunda íþrótt sína í heimabyggð eða annarstaðar eftir atvikum. Einnig eru veittir styrkir vegna menntunar þjálfara/leiðbeinenda.

Úthlutun styrkja fer fram í október nk.

Hægt er að nálgast umsóknareyðublað á heimasíðu Sveitarfélagsins Ölfuss.

Rafræn umsókn.

Umsóknir um styrki úr sjóðnum þurfa að berast til skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Ráðhúsinu Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn, fyrir 1. október næstkomandi, merkt:

AFREKS – OG STYRKTARSJÓÐUR SVEITARFÉLAGSINS ÖLFUSS – UMSÓKN.

Nánari upplýsingar veitir Ragnar Sigurðsson Íþrótta – og tómstundafulltrúi, í síma 480 – 3891 eða á netfanginu ragnar@olfus.is 


Sveitarfélagið Ölfus
Íþrótta – og tómstundanefnd

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?