Ágætu íbúar

Molta 1
Molta 1
Bæjarbúum boðið uppá moltu

Núna þegar vorverkin í garðinum eru á fullu hefur verið ákveðið að bjóða bæjarbúum að koma við í Þjónustumiðstöð Sveitarfélagsins og fá „moltu“ í poka eða kerru til að nota í garðinn.

Ágætu íbúar!

 

 

Núna þegar vorverkin í garðinum eru á fullu hefur verið ákveðið að bjóða bæjarbúum að koma við í Þjónustumiðstöð Sveitarfélagsins og fá „moltu“ í poka eða kerru til að nota í garðinn.

 

Moltan kemur frá Gámaþjónustunni, sem tók við sorphirðu frá heimilum í Sveitarfélaginu í mars síðastliðum og vilja þeir koma á framfæri þakklæti til bæjarbúa fyrir að hafa sýnt þolinmæði gagnvart þeim örfáu hnökrum sem upp komu í byrjun.

 

Molta er tilvalin til þess að setja td. ofan á trjábeð.

 

Þegar moltan er búin til hitnar hún mjög mikið og má því segja að hún sé gerilsneydd og án allra illgresisfræja. Moltan samanstendur af lífrænum úrgangi s.s. eldaðum matarleifum,ávöxtum, grænmeti og kurluðum trjágreinum. Ferlið tekur um 4 mánuði og nær hitin á ferlinu upp í 70°C.

 

Með bestu kveðju og von um að fólk nýti sér þetta.

 

Þjónustumiðstöð Sveitarfélagsins Ölfus og Gámaþjónustan.

 

Ps. Fólk er beðið um að ganga vel um þegar það sækir sér moltu og hreinsa upp eftir sig ef það sullast eitthvað niður.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?