Ágætu íbúar í Ölfusi

hræ2
hræ2
Ábending kom til okkar á bæjarskrifstofunni að einhver hafi hent hræi, beinagrind af kindum, upp með Gamla vegi eins og meðfylgjandi myndir sýna.

Ábending kom til okkar á bæjarskrifstofunni að einhver hafi hent hræi, beinagrind af kindum, upp með Gamla vegi eins og meðfylgjandi myndir sýna.

Gámasvæðið hjá okkur er opið frá kl. 13-18 virka daga og frá kl. 13-16 á laugardögum. Það á að vera létt fyrir þann sem þarf að losa sig við hræ sem þessi að farga þeim á réttan stað í stað þess að henda þeim á víðavang. Svona hefur gerst áður hjá okkur og þá verið hent beinum af stærri gripum við veginn út á bjarg.

Áskorun til ykkar íbúar góðir að ganga vel um og koma sorpi á rétta staði til förgunar.

 

Sigurður Ósmann Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?