Allir Lesa - Heiður sveitarfélagsins í húfi!

Hvaða sveitarfélag er best í lestri?
Hvaða sveitarfélag er best í lestri?

Landsleikurinn ALLIR LESA er nú í fullum gangi og hafa þátttakendur lesið í samtals 850 daga á þeim 14 dögum sem liðnir eru af keppninni. Sveitarfélögin keppast við að hvetja bæjarbúa áfram og víða keppa sjálfir bæjarstjórarnir til sigurs, enda heiður sveitarfélagsins í húfi!

Íbúar í sveitarfélaginu Ölfus standa sig vel að vanda og verma nú 10. sætið. Lestrarhestar bæjarins hafa lesið heilmikið, eða 12,1 klukkustundir að meðaltali. Það verður að teljast fínn árangur en betur má ef duga skal enda sigruðu íbúar Ölfus á síðasta ári og eiga eflaust heilmikið inni! Til að lífga upp á lesturinn næstu daga er tilvalið að taka þátt í bókabingói sem aðstaðandendur Allir lesa hafa sett saman.

Hægt er að skrá sig til leiks fram á síðasta dag landsleiksins, sem er þann 19. febrúar. Skráning fer fram á allirlesa.is auk þess sem hægt er að fylgjast með fréttum og skemmtilegu efni á facebook-síðu leiksins. Aðstandendur Allir lesa eru Reykjavík, bókmenntaborg Unesco og Miðstöð íslenskra bókmennta með stuðningi frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Heimili og skóla. 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?