Eftirtaldar skipulagstillögur eru auglýstar skv. 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögurnar eru til umsagnar í skipulagsgátt og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar þar.
Hvoll í Ölfusi– Nýtt deiliskipulag
Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir jörðina Hvoll í Ölfusi. Í breytingunni felst að jörðinni er skipt upp í tvær jarðir, Arnarhvoll og Arnarhvoll II. Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir byggingu íbúðarhúsa, skemmu og gestahúsa.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 2. júní 2025.
_________________________________
Þorkelsgerði 2c – Nýtt deiliskipulag
Skipulagið hefur áður verið auglýst en féll úr gildi þar sem ár var liðið frá lokum umsagnarfrests. Til stendur að skipta landinu upp í 4 lóðir, þar af eina lóð fyrir íbúðarhús og 3 lóðir undir frístundahús.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 2. júní 2025.
_________________________________
Útvíkkun þéttbýlismarka Þorlákshafnar - ASKbr
Lögð er fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi Ölfuss. Breytingin felst í að þéttbýlismörk Þorlákshafnar eru stækkuð til vesturs þannig að þau nái út fyrir iðnaðarsvæði á Sandi og fiskeldi meðfram ströndinni.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 2. júní 2025.
Skipulagstillögurnar eru til umsagnar á Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is til og með 24. júlí 2025. Til að finna ákveðið mál skal smella á „Leita að máli“ og slá inn nafn málsins í leitarreitinn.
Á Skipulagsgáttinni er hægt að:
- Skoða allar upplýsingar og gögn sem tengjast málinu
- Leggja fram athugasemdir
- Lesa þær athugasemdir sem aðrir hafa sent inn
Ef hakað er við „Vakta mál“ á tilteknu máli, fær viðkomandi tilkynningu í tölvupósti í hvert skipti sem breyting verður á málinu.
Þá er einnig hægt að nálgast upplýsingar eða gögn á Bæjarskrifstofu Ölfus, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, með því að senda fyrirspurn á skipulag@olfus.is eða hafa samband við bæjarskrifstofuna í síma 480 3800.
Sigurður Steinar Ásgeirsson
Skrifstofu- og verkefnastjóri
Umhverfis- og framkvæmdasvið