Eftirtaldar skipulagstillögur eru auglýstar skv. 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögurnar eru til umsagnar í skipulagsgátt og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar þar.
Hafnarsvæði H3 og samfélagsþjónustusvæði S4
Lögð er fram breyting á aðalskipulagi er snertir H3 og S4 auk svæðanna OP1 og OP3. Til stendur að útvíkka H3 til að efla hafnarsvæðið umhverfis Suðurvararbryggju og bæta við nýju athafnarsvæði AT8. Þá stendur einnig til að stækka reit S4 til að hægt sé að koma fyrir hjúkrunarheimili að Egilsbraut 9.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 27. nóvember 2025.
Egilsbraut 9 – hjúkrunarheimili – Breyting á deiliskipulagi
Lögð er fram breyting á deiliskipulagi Egilsbrautar 9. Skipulagssvæðið er stækkað og bætt við nýrri 10.561 m2 lóð. Afmarkaður er byggingarreitur fyrir hjúkrunar- og dvalarheimili og tengda þjónustu. Nýtingarhlutfall lóðar er 0,68. Hús geta verið á allt að fimm hæðum. Bílastæði skulu vera innan byggingarreits og eru sýnd til skýringar á uppdrætti. Innan lóðar er gert ráð fyrir aðlaðandi útisvæðum og gönguleiðum sem tengjast við stígakerfi Þorlákshafnar.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 27. nóvember 2025.
Þorlákshafnarlína 2 – Breyting á aðalskipulagi
Lögð er fram breyting á Aðalskipulagi Ölfuss vegna fyrirhugaðs jarðstrengs til Þorlákshafnar sem ber nafnið Þorlákshafnarlína 2. Um er að ræða 132 kv jarðstreng sem kemur til með að liggja meðfram Þorlákshafnarvegi milli Hveragerðis og Þorlákshafnar.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 25. september 2025.
_________________________________
Skipulagstillögurnar eru til umsagnar á Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is til og með 15.1.2026. Til að finna ákveðið mál skal smella á „Leita að máli“ og slá inn nafn málsins í leitarreitinn.
Á Skipulagsgáttinni er hægt að:
- Skoða allar upplýsingar og gögn sem tengjast málinu
- Leggja fram athugasemdir
- Lesa þær athugasemdir sem aðrir hafa sent inn
Ef hakað er við „Vakta mál“ á tilteknu máli, fær viðkomandi tilkynningu í tölvupósti í hvert skipti sem breyting verður á málinu.
Þá er einnig hægt að nálgast upplýsingar eða gögn á Bæjarskrifstofu Ölfus, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, með því að senda fyrirspurn á skipulag@olfus.is eða hafa samband við bæjarskrifstofuna í síma 480 3800.
Sigurður Steinar Ásgeirsson
Sviðsstjóri
Skipulags- og lögfræðisvið
Vakin er athygli á að samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 73/2020 og 2. mgr. 6. gr. laga nr. 160/2010, má kæra ákvarðanir sveitarstjórnar um samþykkt aðalskipulagsbreytinga og deiliskipulagsáætlana til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Um kærufrest fer samkvæmt 3. mgr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem kveðið er á um fjögurra vikna kærufrest frá birtingu ákvörðunar í B-deild Stjórnartíðinda.
Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 14. gr. sömu laga og 5. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi, er sjálfstætt kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Kærufrestur vegna slíkrar ákvörðunar er einn mánuður, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011.
Um meðferð kærumála gilda ákvæði laga nr. 130/2011, reglugerðar nr. 1300/2011 um málsmeðferð fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, auk ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993, einkum um kæruheimild, sbr. 26. gr., andmælarétt, sbr. 13. gr., og rannsóknarreglu, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.
Kæru skal beint til úrskurðarnefndarinnar að Borgartúni 21, 105 Reykjavík, eða með rafrænum hætti í gegnum kærugátt Stjórnarráðs Íslands á www.stjornarradid.is