Eftirtaldar skipulagstillögur eru auglýstar skv. 30. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögurnar eru til umsagnar í skipulagsgátt og er hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar þar.
Hraunstjörn og Hraunsland – nýr byggingareitur– nýtt deiliskipulag
Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar Hraunstjörn og Hraunsland. Á svæðinu er hraun sem rann eftir ísöld og er því friðað samkvæmt náttúruverndarlögum. Byggingarreitum hefur verið fundinn staður þar sem hraunið er gróið og hefur takmarkað verndargildi.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 27.ágúst 2026.
Grímslækjarheiði - Hraunkvíar – nýtt deiliskipulag
Lagt er fram deiliskipulag fyrir Ytri-Grímslæk og Hraunkvíar sem eru saman um 9,2 ha. að stærð. Til stendur að afmarka 14 íbúðalóðir í samræmi við aðalskipulag Ölfuss reit ÍB17.
Deiliskipulagið er endurauglýst þar sem meira en 12 mánuðir eru liðnir frá lokum auglýsingafrests og skipulagið ekki verið birt í B-deild.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 27. ágúst 2026
Tangagljúfur og Háagljúfur – AT6, ÍB36 og VÞ20 –óverulegt aðalskipulag
Lögð er fram breyting þar sem atvinnusvæði AT6 hliðrast, en heldur umfangi sínu. Eftir breytingu myndi atvinnusvæðið byrja þar sem landi tekur að halla í bæjarholtinu með minna skuggavarpi á þegar skipulagðar íbúðarlóðir á háholtinu, sbr. deiliskipulag um Háagljúfur. Atvinnusvæðið færist einnig milli taflna í aðalskipulagi, fer úr því að vera athafnasvæði með lítið mengandi starfsemi í svæði fyrir verslun og þjónustu. Gert er ráð fyrir að sá hluti verslunar og þjónustusvæðisins sem er sunnan og vestan Ölfusvegar verði fyrir alhliða þjónustu við ferðamenn, íþrótta- og afþreyingarmiðstöð og vagna- og vélasölu.
Eftir breytingu myndi verslunar og þjónustusvæði vera 8,2 ha. en nýtt íbúðasvæði 2,4 ha. Samtals eru svæðin því 10,6 ha. Fyrir breytingu er AT6 svæðið samtals 8,3 ha. Aðalskipulagsbreytingin felur að hluta til í sér hliðrun og að hluta til breytingu úr AT í ÍB og VÞ svæði. Um er að ræða stækkun á heildarsvæðinu úr Landbúnaðarsvæði í ÍB og VÞ um 2,3 ha.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 27. ágúst 2026.
_________________________________
Skipulagstillögurnar eru til umsagnar á Skipulagsgáttinni á www.skipulagsgatt.is til og með 22.10.2026. Til að finna ákveðið mál skal smella á „Leita að máli“ og slá inn nafn málsins í leitarreitinn.
Á Skipulagsgáttinni er hægt að:
- Skoða allar upplýsingar og gögn sem tengjast málinu
- Leggja fram athugasemdir
- Lesa þær athugasemdir sem aðrir hafa sent inn
Ef hakað er við „Vakta mál“ á tilteknu máli, fær viðkomandi tilkynningu í tölvupósti í hvert skipti sem breyting verður á málinu.
Gögn vegna framkvæmdaleyfa eru jafnframt aðgengileg í skipulagsgátt og má finna leiðbeiningar um kærur og upplýsingar um kærufresti hér að neðan.
Þá er einnig hægt að nálgast upplýsingar eða gögn á Bæjarskrifstofu Ölfus, Hafnarbergi 1, Þorlákshöfn, með því að senda fyrirspurn á skipulag@olfus.is eða hafa samband við bæjarskrifstofuna í síma 480 3800.
Sigurður Steinar Ásgeirsson
Sviðsstjóri
Skipulags- og lögfræðisvið
Vakin er athygli á að samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 73/2020 og 2. mgr. 6. gr. laga nr. 160/2010, má kæra ákvarðanir sveitarstjórnar um samþykkt aðalskipulagsbreytinga og deiliskipulagsáætlana til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Um kærufrest fer samkvæmt 3. mgr. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem kveðið er á um fjögurra vikna kærufrest frá birtingu ákvörðunar í B-deild Stjórnartíðinda.
Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 2. mgr. 14. gr. sömu laga og 5. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi, er sjálfstætt kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011. Kærufrestur vegna slíkrar ákvörðunar er einn mánuður, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 130/2011.
Um meðferð kærumála gilda ákvæði laga nr. 130/2011, reglugerðar nr. 1300/2011 um málsmeðferð fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, auk ákvæða stjórnsýslulaga nr. 37/1993, einkum um kæruheimild, sbr. 26. gr., andmælarétt, sbr. 13. gr., og rannsóknarreglu, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga.
Kæru skal beint til úrskurðarnefndarinnar að Borgartúni 21, 105 Reykjavík, eða með rafrænum hætti í gegnum kærugátt Stjórnarráðs Íslands á www.stjornarradid.is