Á myndinni eru íbúar götunnar sem voru heima með fulltrúum umhverfisnefndar Hrönn Guðmundsdóttur og Hirti Ragnarssyni. Frá vinstri Bettý Grímsdóttir, Árni Hrannar Arngrímsson, Marian Stanislaw Barzowski, Guðni Birgisson, Ingigerður Eyglóardóttir, Ragnhildur Þorsteinsdóttir og Gauti Guðlaugsson. Á myndina vantar Guðbjörgu Kjartansdóttur, Markús Haraldsson, Jóhannes Magna Magneuson og Anettu Sigdísi Kristinsdóttur.
Umhverfisverðlaun Sveitarfélagsins Ölfuss eru veitt árlega og skiptast á milli verðlauna fyrir fallegustu garða og snyrtilegustu götuna og fyrirtækið í sveitarfélaginu. Árið 2025 voru veitt verðlaun fyrir snyrtilegustu götu og snyrtilegustu fyrirtækin, bæði í Þorlákshöfn og í dreifbýlinu.
Snyrtilegasta gatan: Básahraun 25–35, Þorlákshöfn
Umhverfisnefndin valdi Básahraun 25 til 35 sem snyrtilegustu götuna í sveitarfélaginu. Gatan er fallegur botnlangi með hlýlegri heildarsýn þar sem húsin eru vel við haldið og garðarnir grónir og snyrtilegir. Gatan er íbúum sínum til mikils sóma og skapar gott fordæmi fyrir umhverfisvitund og samheldni.
Snyrtilegasta fyrirtækið í Þorlákshöfn: Skálinn

Eyþór, Guðrún Jóna og börnin þeirra ásamt Hrönn
Í Þorlákshöfn varð Skálinn fyrir valinu sem snyrtilegasta fyrirtækið. Skálinn rekur eldneytisstöð, sjoppu og veitingastað og hefur nýverið verið málaður í fallegum bleikum lit sem vekur athygli og gleði. Plönin í kring eru snyrtileg og vel hirt. Rekstraraðilar Skálans, Guðrún Jóna Árnadóttir og Eyþór Sigurðarson, hafa lagt metnað í að skapa aðlaðandi og vistvænt umhverfi fyrir gesti og viðskiptavini.
Snyrtilegasta fyrirtækið í dreifbýli: Hrossaræktarbúið á Laugarbökkum

Erla og Kristinn ásamt Geir og Baldri fulltrúum umhverfisnefndar
Í dreifbýlinu varð Hrossaræktarbúið á Laugarbökkum fyrir valinu. Laugarbakkar standa við bakka Ölfusár, rétt neðan við þar sem Sogið og Hvítá mætast. Þar hafa Kristinn Valdimarsson og Erla G. Matthíasdóttir rekið hrossaræktarbú frá árinu 2002. Umhverfið er einstaklega snyrtilegt – ný hús hafa verið byggð, eldri hús endurnýjuð, reiðvegir lagðir, vegir malbikaðir og skjólbelti gróðursett. Túnin eru vel hirt og skurðruðningar sléttaðir, sem gefur jörðinni skipulagt og fallegt yfirbragð.
Við óskum öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju og þökkum þeim fyrir að leggja sitt af mörkum til að fegra og bæta umhverfið í Sveitarfélaginu Ölfusi.
Umhverfisnefnd Ölfuss