Fjall af óskilamunum í íþróttamiðstöðinni

Fatnaður, handklæði, skór og margt fleira bíða eftir eigendum sínum
Fatnaður, handklæði, skór og margt fleira bíða eftir eigendum sínum

Nú er tilvalið að sækja föt, skó, yfirhafnir, handklæði, sundföt og margt fleira sem hefur gleymst í íþróttamiðstöðinni í vetur. Búið er að raða upp og flokka óskilamunina sem bíða eftir eigendum sínum í stúkunni í íþróttahúsinu.

Opið verður í eina viku frá 19. júní – 27. júní frá kl. 7 - 21.

Eftir þá viku verður farið með fatnaðinn í endurvinnslugáminn.

Allir velkomnir

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?