Forkynning-skipulagsmál

Forkynning á tveimur skipulagstillögum

Eftirtaldar skipulagstillögur verða til kynningar skv. 3. mgr. 40 gr. skipulagslaga og 2. mgr. 30 gr. nr. 123/2010, á skrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss, Hafnarbergi 1 frá 26. nóvember til hádegis þann 30. nóvember. 

- Skipulaglýsing fyrir nýtt íbúðasvæði vestan Þorlákshafnar. Svæðið er á 9 hektara reit vestan við núverandi byggð í Þorlákshöfn. Staðsetningin tekur mið af samlegðaráhrifum vegna innviða, hagkvæmari nýtingu lands og tengingu byggðarinnar við Selvogsbraut. Verkefninu er ætlað að svara mikilli eftirspurn sem er eftir byggingarlóðum í þéttbýli Þorlákshafnar. Milli svæðisins og núverandi byggðar verður um 70 metra breitt „hraunbelti“ þar sem núverandi útivistarstígur, heilsustígurinn mun áfram liggja. Lýsinguna má sjá hér

- Deiliskipulag fyrir Fiskalón í Ölfusi. Skipulagið er nú auglýst að nýju. Byggingarmagn, hæð húsa og nýtingarhlutfall er skilgreint fyrir svæðið. Markmiðið er að stuðla að áframhaldandi uppbyggingu seiðaeldis sem hefur verið á svæðinu í áratugi, í samræmi við auknar kröfur sem gerðar eru til svona starfsemi.

Deiliskipulagið má sjá hér og greinargerð hér

Gunnlaugur Jónasson, skipulagsfulltrúi

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?