Guðmundur Karl íþróttamaður Ölfuss 2016

ithrottamadur_olfuss2016_10
ithrottamadur_olfuss2016_10
Íþróttamaður Ölfuss árið 2016 er knattspyrnumaðurinn Guðmundur Karl Guðmundsson.  

Íþróttamaður Ölfuss árið 2016 er knattspyrnumaðurinn Guðmundur Karl Guðmundsson. Kjörið á íþróttamanni Ölfuss fór fram í Ráðhúsi Ölfuss í dag en samkvæmt íþrótta- og æskulýðsnefnd var valið mjög erfitt þar sem margir íþróttamenn úr Ölfusi sköruðu fram úr í sinni grein á síðasta ári.

Umsögn  Íþrótta- og æskulýðsnefndar um Guðmund Karl:

Guðmundur Karl hefur leikið knattspyrnu með Fjölni í Grafarvoginum í Pepsí-deild karla undanfarin ár. Hann átti mjög gott tímabil á síðasta ári og var algjör lykilmaður í liði Fjölnis. Guðmundur er mjög fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum og er ákaflega duglegur og traustur leikmaður. Guðmundur skrifaði svo undir samning við Íslandsmeistara FH. Það verður gaman að fylgjast með honum á næstu tímabilum.

Tólf íþróttamenn voru tilnefndir í kjörinu um íþróttamann Ölfuss 2016 en listann má sjá hér fyrir neðan. Einnig voru viðurkenningar veittar til þeirra sem unnið hafa bikar- eða Íslandsmeistaratitil á árinu og/eða hafa keppt með landsliði Íslands í sinni grein.

Þessi voru tilnefnd til íþróttamanns Ölfuss 2016

  • Guðmundur Karl Guðmundsson – Tilnefndur af Golfklúbbi Þorlákshafnar
  • Birta Óskarsdóttir – Tilnefnd af Ungmennafélaginu Þór, fimleikadeild
  • Viktor Karl Halldórsson – Tilnefndur af Knattspyrnufélaginu Ægi
  • Katrín Stefánsdóttir – Tilnefnd af Hestamannafélaginu Háfeta
  • Glódís Rún Sigurðardóttir – Tilnefnd af Hestamannafélaginu Ljúfi
  • Halldór Garðar Hermannsson – Tilnefndur af Ungmennafélaginu Þór, körfuknattleiksdeild
  • Styrmir Dan Steinunnarson – Tilnefndur af Ungmennafélaginu Þór, frjálsíþróttadeild
  • Axel Örn Sæmundsson – Tilnefndur af Ungmennafélaginu Þór, badmintondeild
  • Gyða Dögg Heiðarsdóttir – Tilnefnd af Ungmennafélaginu Þór, akstusíþróttadeild
  • Guðmundur Karl Guðmundsson – Tilnefndur af íþrótta- og æskulýðsnefnd fyrir knattspyrnu
  • Snorri Þór Árnason – Tilnefndur af íþrótta- og æskulýðsnefnd fyrir akstursíþróttir
  • Þorsteinn Helgi Sigurðarson – Tilnefndur af íþrótta- og æskulýðsnefnd fyrir hnefaleika

Sveitarfélagið Ölfus óska Guðmundi Karli og öllum þeim sem tilnefnd voru innilega til hamingju með frábæran árangur.


X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?