Hamingjuhofn.is – er nýr fréttavefur tileinkaður Þorlákshöfn og nágrenni

Nýr fréttavefur fyrir Þorlákshöfn og nágrenni hóf göngu sína á vormánuðum.
Nýr fréttavefur fyrir Þorlákshöfn og nágrenni hóf göngu sína á vormánuðum.
Það er Þorlákhafnarbúinn Sigmar Örn Sigþórsson sem er stofnandi fréttavefsins.
Sigmar segir að hugmyndin hafi sprottið upp til að halda utan um það sem skiptir okkur máli hér í bænum. Hvort sem það eru viðburðir, fréttir úr samfélaginu, skoðanir eða myndir úr hversdagslífinu, þá hefur þessi síða eitt markmið – að vera vettvangur fyrir bæjarbúa og alla þá sem hafa áhuga á því sem gerist í Þorlákshöfn.
Við viljum halda þessu gagnsæju, einföldu og lifandi. Engin stór orð, enginn útúrsnúningur – bara raunverulegt efni sem skiptir máli.
Það verður hægt að skrá viðburði, senda inn pistla, deila myndum og fylgjast með því sem er að gerast. Þetta er ekki fjölmiðill í hefðbundnum skilningi heldur vettvangur sem vex með þátttöku fólksins í bænum. Ef þú hefur eitthvað að segja eða sýna, þá sendu okkur línu.
Hamingjuhofn.is er ekki rekin fyrir eitthvað sérstakt markmið nema þetta eitt að hjálpa okkur að fylgjast með og halda sambandi við samfélagið sem við búum í
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?