Hjólað í vinnuna 2025

Miðvikudaginn 7. maí hefst Hjólað í vinnuna í tuttugasta og þriðja sinn.

Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarverkefninu „Hjólað í vinnuna“.

Megin markmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Þátttakendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur til og frá vinnu í þrjár vikur í maí ár hvert.

Starfsmenn vinnustaða hér á landi hafa tekið vel við sér því þátttakan hefur margfaldast síðan að verkefnið fór af stað.

Hjólað í vinnuna fer fram dagana 7. – 27. maí 2025.

Á meðan átakið stendur yfir  verða heppnir þátttakendur dregnir út í skráningarleik Hjólað í vinnuna alla virka daga í þættinum Morgunverkin á Rás 2. Hjólreiðaverslunin Örninn gefur glæsilega vinninga en einnig fá vinningshafar vörur frá Unbroken. Þann 27. maí er dregið út glæsilegt reiðhjól að verðmæti rúml.100.000kr. 
Myndaleikurinn er a sínum stað á Instagram, Facebook og á heimasíðunni þar sem myndasmiðir sem merkja myndina með #hjoladivinnuna fá glæsilegar vörur frá Erninum og Unbroken.

Allar upplýsingar um verkefnið er að finna á www.hjoladivinnuna.is en þar má einnig finna efni til að dreifa á vinnustöðum, svo sem reglur keppninnar, hvatningarbréf, veggspjöld og fleira. 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?