Hopp rafhjól komin til Þorlákshafnar

Sveitarfélagið Ölfus fagnar því að 10 Hopp rafhjól eru nú aðgengileg í Þorlákshöfn, sem markar mikilvægt skref í átt að sjálfbærari og snjallari samgöngum innan sveitarfélagsins. Þessi nýja þjónusta býður íbúum og gestum upp á þægilegan og umhverfisvænan ferðamáta, hvort sem tilefnið er að skjótast í sund, í vinnuna eða út í sjoppu.

Með tilkomu Hopp hjólanna gefst tækifæri til að styðja við orkuskipti í daglegum ferðum og draga úr bílaumferð, sem stuðlar að hreinna og aðgengilegra samfélagi. Þetta er einnig liður í því að bæta samgöngukosti í Þorlákshöfn og skapa grænna umhverfi fyrir alla.

Við hvetjum alla til að kynna sér notkunarskilmála og skrá sig í Hopp appið – og umfram allt að nota hjólin af ábyrgð og virðingu við aðra vegfarendur. Við minnum einnig á að leggja hjólunum á merktum stöðum og fylgja leiðbeiningum í appinu til að tryggja öryggi og aðgengi fyrir alla.

Þetta er spennandi skref í átt að sjálfbærari framtíð, og við hlökkum til að sjá hvernig Hopp rafhjól munu nýtast íbúum og gestum Þorlákshafnar í daglegu lífi.

 

Forsvarsmenn HOPP vilja biðja notendur þjónustunnar um að fara varlega og fylgja umferðarlögum. Einnig er eindregið mælt með að fólk noti hjálm á meðan hoppað er um götur bæjarins. Í appinu eru nákvæmar leiðbeiningar og notendaskilmálar um hvernig á að nota þjónustuna og hvar er leyfilegt að hoppa. Við uppsetningu á appinu eru notendum kennt hvernig á að leggja rafskútunum að ferð lokinni þannig að þær verði ekki í vegi fyrir öðrum vegfarendur.

Við biðjum íbúa að kynna sér reglur Hopp hér eða í Hopp appinu, áður en byrjað er að Hoppa

Frekari upplýsingar veitir Sigurgeir Skafti, fyrir hönd Hopp á Suðurlandinu, í síma 846-7713 eða með netfanginu sudurland@hopp.bike

 

Á myndinni hér að neðan má sjá hvar hægt er að Hoppa. En athugið að bannað er að leggja hjólunum á þeim svæðum sem eru grá á kortinu (Skrúðgarðinum, íþróttavellinum og í kirkjugarðinum. 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?