Hraunheimar fá Bambahús í sumargjöf

Kærar þakkir frá okkur í Ölfusi
Kærar þakkir frá okkur í Ölfusi

Leikskólinn Hraunheimar í Þorlákshöfn hefur hlotið einstaka og veglega gjöf – þrefalt Bambahús 🎉

Leikskólinn fékk fjölda tilnefninga í leik sem Bambahús og K100 stóðu fyrir á facebook. Það var mikil gleði hjá starfsmönnum og börnum á Hraunheimum þegar fréttin kom í loftið:
"Besta sumargjöf í heimi 🙂 takk innilega fyrir okkur og TAKK allir sem kusu Hraunheima. Við erum óendanlega þakklát ❤️"
 

💚 Við í Leikskólanum Hraunheimum og Ölfusi erum afar þakklát fyrir gjöfina. Slík samvinna og velvild er ómetanleg og styrkir okkur í því að skapa börnum enn betra og innihaldsríkara umhverfi.

Takk fyrir okkur 💚
Leikskólinn Hraunheimar & Sveitarfélagið Ölfus

 
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?