Iðkendur Ægis til fyrirmyndar á Smábæjarleikunum

Liðið á smábæjarleikunum 2011
Liðið á smábæjarleikunum 2011

 

Helgina 18. – 19. júní tóku 7. og 6. flokkur Ægis þátt í Smábæjarleikunum á Blönduósi.  Krakkarnir stóðu sig frábærlega eins og von var á en einnig voru þau til fyrirmyndar í framkomu innan vallar sem utan.

Eftir mótið valdi mótsstjórn eitt lið sem hlaut sérstaka viðurkenningu frá styrktaraðilum mótsins vegna prúðmennsku og góðrar framkomu á mótinu.  Var það einróma álit starfsmanna og mótshaldara að lið Ægis fengi þessi verðlaun.  Sannarlega frábær viðurkenning fyrir krakkana okkar.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?