Íþróttamiðstöðin fékk vogir að gjöf

Hannes Sigurðsson og Þórhildur Ólafsdóttir komu færandi hendi fyrir verslunarmannahelgi og gáfu íþróttamiðstöðinni tvær vogir fyrir hönd Hafnarnes/Ver og SB Skilta. Þessar vogir koma að góðum notum og verða staðsettar í búningsklefum íþróttamiðstöðvarinnar.
Við þökkum Hannesi og Þórhildi kærlega fyrir gjöfina og hugulsemina.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?