Kæru sundlaugargestir

Fimmtudaginn 10. desember fáum við leyfi til að opna aftur sundlaugina. Fjöldi gesta má vera 50% af starfsleyfi sundlaugarinnar:

Sundlaugin  er með starfsleyfi fyrir 126 baðgesti. Við höfum því leyfi fyrir 63 baðgesti. Börn fædd 2005 og síðar teljast ekki með.

Sundlaugin opnar fimmtudaginn 10. desember klukkan 7.00 og venjuleg opnun framundan.

Í ljósi aðstæðna þá biðjum við viðskiptavini að dvelja ekki lengur í sundlauginni en 60 til 90 mínútur svo að allir geti notið þess að komast loksins í sund.

Ath: Líkamsræktin er því miður enn lokuð.

Bestu kveðjur,

Starfsfólk Íþróttamiðstöðvar Þorlákshafnar

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?