Kísilmálmverksmiðja í umhverfismat

Þorlákshöfn
Þorlákshöfn

Búið er að auglýsa tillögu að umhverfismati á nýrri kísilmálmverksmiðju sem ætlað er að rísi vestan við Þorlákshöfn.

   

Búið er að auglýsa tillögu að umhverfismati á nýrri kísilmálmverksmiðju sem ætlað er að rísi vestan við Þorlákshöfn.  Það er fyrirtækið Thorsil ehf. sem hyggst reisa verksmiðjuna þar sem vinna á allt að sextíu þúsund tonn af kísilmálmi í tveimur ofnum.  Mikil eftirspurn er eftir slíkum málmi á heimsmarkaði um þessar mundir, einkanlega til framleiðslu á sólarrafhlöðum.  Að sögn Hákons Björnssonar framkvæmdastjóra Thorsils eru bjartar horfur í þessum iðnaði og samningar um sölu afurðinnar fremur auðfengnir.  Hákon segir að kostnaður við byggingu verksmiðjunnar sé um 30 milljarðar króna og fjármögnun í góðum farvegi.  Um 85 megavött af rafmagni þarf til framleiðslunnar og samkvæmt heimildum Sunnlenska er afhending þeirrar orku innan áætlana Orkuveitu Reykjavíkur.  Verksmiðjan á að rísa á 26 hektara lóð á iðnaðarsvæði sem er í skipulagi við Suðurstrandarveg.  Ætlað er að um 160 manns starfi við framleiðslu í verksmiðjunni en um 400 manns við að reisa hana.

(Heimild www.sunnlenska)

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?