Körfuknattleiksdeild Þórs gefur bolta

korfubolti
korfubolti

Um liðna helgi heimsóttu leikmenn meistarflokks Þórs alla krakka fædda árin 2005 - 2007 í Þorlákshöfn. Gáfu þeir krökkunum körfubolta og kynntu um leið námskeið í míkróbolta sem hefst 29. sept n.k. Brosmild andlit mættu strákunum og voru allir ánægðir með gjöfina. 

Um liðna helgi heimsóttu leikmenn meistarflokks Þórs alla krakka fædda árin 2005 - 2007 í Þorlákshöfn. Gáfu þeir krökkunum körfubolta og kynntu um leið námskeið í míkróbolta sem hefst 26. sept n.k.  Brosmild andlit mættu strákunum og voru allir ánægðir með gjöfina.  Það er nýung hjá deildinni að bjóða þessum aldursflokkum upp á námskeið en farið er í leiki með bolta og ýmsar æfingar sem auka styrk, jafnvægi, þol, boltatækni og samhæfingu handa og fóta. Nú fer að styttast í fyrsta leik í Úrvalsdeildinni og er boltagjöfin liður í kynningarátaki deildarinnar á körfuboltanum.  Við eigum von á að allir bæjarbúar og nágrannar fylgist vel með okkar mönnum í vetur og fjölmenni á leiki.

Áfram Þórsarar !

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?