Lagningu Ljósveitu lokið í Þorlákshöfn

mila-logo
mila-logo
Til að nálgast þjónustuna skal hafa samband við þjónustuaðila sinn, en Ljósveita Mílu er opið aðgangsnet sem öll fjarskiptafélög geta haft aðgang að.

Míla hefur lokið lagningu ljósveitu í Þorlákshöfn, en verkefnið hófst í ágúst síðastliðnum. Settir voru upp götuskápar í bænum sem tengdir eru ljósleiðara og frá þeim eru heimilin tengd á háhraðanet Mílu.

Nú hafa flestallir íbúar Þorlákshafnar möguleika á að tengjast Ljósveitunni og fá þar með háhraðasamband sem gefur internethraða upp á 50 – 70 Mb/s til heimila og 25 Mb/s frá heimilum. 

 

Til að nálgast þjónustuna skal hafa samband við þjónustuaðila sinn, en Ljósveita Mílu er opið aðgangsnet sem öll fjarskiptafélög geta haft aðgang að.

 

Nánari upplýsingar um Ljósveitu má finna á heimasíðu Mílu, www.mila.is

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?