Lóðin er fullhönnuð og öll leiktæki eru komin í pöntun. Stefnt er að því að lóðin verði tilbúin eigi síðar en 20. ágúst. Hún er hönnuð af Elízabetu Guðnýju, landslagsarkitekt hjá Landslagi.
Það er margt sem þarf að hafa í huga þegar nýr leikskóli tekur til starfa. Við erum heppin að vera með frábært fagfólk með reynslu af hönnun menntastofnana og leikskólalóða, en sem einnig hlustar á skoðanir og reynslu þeirra sem starfa á gólfinu. Samstarf við arkitekta – bæði hús- og lóðaarkitekt – og iðnaðarmenn sem sinna verkinu hefur verið gott og jákvætt. Þó má gera ráð fyrir að eitthvað komi upp sem við hefðum viljað gera öðruvísi. Að mínu mati er það óhjákvæmilegur veruleiki þegar unnið er að jafn umfangsmiklu verkefni.
Staðan í dag
Staðan er góð. Ég fór á verkfund með iðnaðarmönnum leikskólans í liðinni viku. Öll gólf hafa verið flotlögð, veggir grunnmálaðir og hafist er handa við að mála loft og veggi. Fyrsti gámurinn með innréttingum er væntanlegur 10. júní. Einnig hefur verið sett upp styrking í loftið fyrir kaðla í salnum.
Lóðin er fullhönnuð og öll leiktæki eru komin í pöntun. Stefnt er að því að lóðin verði tilbúin eigi síðar en 20. ágúst. Hún er hönnuð af Elízabetu Guðnýju, landslagsarkitekt hjá Landslag. Guðný hefur lagt áherslu á að skapa leiksvæði sem höfða til allra barna, óháð hreyfigetu. Sérstök áhersla hefur verið lögð á aðgengi, fjölbreytta hreyfimöguleika og skapandi umhverfi.
Sandkassinn verður aðgengilegur öllum – hann er með rampi og án kanta til að auðvelda aðkomu. Leikkastalinn er með leiksvæði undir sér og er tvískiptur að ofan, þannig að börn geta klifrað hærra eftir getu og sjálfstrausti. Á leiksvæðinu verða tvö trampólín, þrautabraut og hreyfisvæði með marki og körfuboltakörfu. Körfuboltakarfan er öðruvísi, en boltinn hefur þrjár útgönguleiðir sem gerir leikinn öðruvísi og skemmtilegan.
Sullsvæðið verður með þremur rennum þannig að allt að átta börn geti leikið sér þar í einu. Gert er ráð fyrir hjólabraut, svo börn hjóli ekki þar sem annar leikur fer fram. Einnig verða á lóðinni skemmtileg viðardýr sem nýtast í fjölbreyttan leik.
Á lóðinni verður útikennslusvæði. Það verður afgirt og mun nýtast vel í leik og nám. Svæðið verður þó ekki fullklárað strax, þar sem ætlunin er að móta það smám saman í takt við þarfir og hugmyndir starfsfólks og barna. Þar má hugsa sér gróðurhús, smíðaskúr, eldstæði, drullusvæði eða jafnvel ójafna hjólabraut fyrir jafnvægishjól – allt eftir því sem reynist henta. Svæðið verður þó nýtt strax í haust og við teljum það mikinn kost að hafa slíkt svæði við leikskólann.
Ég er ótrúlega spennt fyrir þessu verkefni og hlakka enn meira til að sjá það verða að veruleika, taka á móti börnunum ykkar og fylgjast með þeim vaxa og dafna í leikskólastarfinu.
Með kærri kveðju,
Hrafnhildur Hlín
Leikskólastjóri
