Litrík mósaík listasmiðja í Listasafni Árnesinga.

Litrík mósaík listasmiðja fyrir alla fjölskylduna, krakkana, mömmu, pabba, ömmu og afa, í Listasafni Árnesinga, laugardaginn 17. mars kl. 13-16.

Fögnum vori og hækkandi sól og búum til litríkar vorgrímur og páskagreinar skreyttar með pappírsmósaík og litríkum fjöðrum.

Allt efni á staðnum og þátttaka gestum að kostnaðarlausu.

Sjáumst í Listasafni Árnesinga, Austurmörk 21, 810 Hveragerði.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?