Meirihluti hefur verið myndaður í Ölfusi

A listi Fyrir okkur öll og B listi Framfarasinnar hafa myndað meirihluta

A listi Fyrir okkur öll og B listi Framfarasinnar hafa gengið frá málefnasamningi um að starfa saman í meirihluta í Sveitarfélaginu Ölfusi kjörtímabilið 2010-2014.

Sigríður Lára Ásbergsdóttir af A lista verður formaður bæjarstjórnar og Sveinn Steinarsson af B lista verður formaður bæjarráðs. Auglýst verður eftir bæjarstjóra fljótlega.

Meðal markmiða meirihlutasamstarfs A Fyrir okkur öll og B Framfarasinna er að auka aðkomu annarra lista að undirbúningi mála og ákvarðanatöku þannig að bæjarstjórn og nefndir vinni í meira mæli sem ein heild í þágu allra bæjarbúa.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?