Minni á að umsóknarfrestur í lista- og menningarsjóð rennur út 13. nóvember 2017.

Markaðs- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Ölfuss auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði Ölfuss.

Markmið sjóðsins er:

-          Að efla hverskonar menningarstarfsemi og list í sveitarfélaginu.

-          Að veita styrki til sérstakra verkefna á sviði menningarmála er tengjast sveitarfélaginu á einn eða annan hátt.

Upplýsingar um reglur sjóðsins er að finna á vef sveitarfélagsins

Hægt er að nálgast umsóknarblöð á skrifstofu eða vef sveitarfélagsins.

Umsóknarfrestur er til 13. nóvember 2017 og skulu umsóknir berast til markaðs- og menningarfulltrúa á skrifstofu sveitarfélagsins, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn merkt „Lista- og menningarsjóður Ölfuss“ eða í tölvupósti annamargret@olfus.is

Nánari upplýsingar veitir Anna Margrét Smáradóttir, markaðs- og menningarfulltrúi í síma 480 3808 eða tölvupósti annamargret@olfus.is.

Hér má nálgast umsókn 

Markaðs- og menningarnefnd Ölfuss

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?