Til að bæta aðstöðu fyrir gesti sem heimsækja bæjarhátíðina "Hamingjuna við hafið" verða viðbótar stæði fyrir ferðahýsi
Tvö svæði verða í boði fyrir ferðahýsi:
- Bílastæði og grassvæði við grunnskólann.
- Malarsvæði við gömlu fótboltavellina.

Á tjaldsvæðinu, sem er merkt með fjólubláum lit á svæðiskorti, er góð þjónustuaðstaða. Þar eru fimm salerni, tvær sturtur og aðstaða til uppvasks. Svæðið er slétt og með ágætu aðgengi fyrir fatlaða. Grænmerktu svæðin bjóða ekki uppá notkun á rafmagni.
Rekstur tjaldsvæðisins í Þorlákshöfn er í höndum Landamerkis. Nánari upplýsingar má finna á www.utilegukortid.is eða með því að senda fyrirspurn á camping.thorlakshofn@gmail.com.
Rekstraraðili tjaldsvæðisins er jafnframt tengiliður vegna grænmerktra tjaldsvæða sem eru fyrir ferðahýsi.